Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 7

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    7:1 Son minn, varðveit þú orð mín og geym þú hjá þér boðorð mín.

    7:2 Varðveit þú boðorð mín, og þá munt þú lifa, og áminning mína eins og sjáaldur auga þíns.

    7:3 Bind þau á fingur þína, skrifa þau á spjald hjarta þíns.

    7:4 Seg við spekina: ,,Þú ert systir mín!`` og kallaðu skynsemina vinkonu,

    7:5 svo að þær varðveiti þig fyrir léttúðarkonu, fyrir blíðmálugri konu sem annar á.

    7:6 Út um gluggann á húsi mínu, út um grindurnar skimaði ég

    7:7 og sá þar meðal sveinanna ungan og vitstola mann.

    7:8 Hann gekk á strætinu nálægt horni einu og fetaði leiðina að húsi hennar,

    7:9 í rökkrinu, að kveldi dags, um miðja nótt og í niðdimmu.

    7:10 Gekk þá kona í móti honum, búin sem portkona og undirförul í hjarta _

    7:11 hávær er hún og óhemjuleg, fætur hennar tolla aldrei heima,

    7:12 hún er ýmist á götunum eða á torgunum, og situr um menn hjá hverju horni _,

    7:13 hún þrífur í hann og kyssir hann og segir við hann, ósvífin í bragði:

    7:14 ,,Ég átti að greiða heillafórn, í dag hefi ég goldið heit mitt.

    7:15 Fyrir því fór ég út til móts við þig, til þess að leita þín, og hefi nú fundið þig.

    7:16 Ég hefi búið rúm mitt ábreiðum, marglitum ábreiðum úr egypsku líni.

    7:17 Myrru, alóe og kanel hefi ég stökkt á hvílu mína.

    7:18 Kom þú, við skulum drekka okkur ástdrukkin fram á morgun, gamna okkur með blíðuhótum.

    7:19 Því að maðurinn minn er ekki heima, hann er farinn í langferð.

    7:20 Peningapyngjuna tók hann með sér, hann kemur ekki heim fyrr en í tunglfylling.``

    7:21 Hún tældi hann með sínum áköfu fortölum, ginnti hann með kjassmælum sínum.

    7:22 Hann fer rakleiðis á eftir henni, eins og naut gengur fram á blóðvöllinn, og eins og hjörtur, sem anar í netið,

    7:23 uns örin fer í gegnum lifur hans, eins og fuglinn hraðar sér í snöruna, og veit ekki, að líf hans er í veði.

    7:24 Og nú, þér yngismenn, hlýðið á mig og gefið gaum að orðum munns míns.

    7:25 Lát eigi hjarta þitt teygjast á vegu hennar, villst eigi inn á stigu hennar.

    7:26 Því að margir eru þeir, sem hún hefir sært til ólífis, og mesti grúi allir þeir, sem hún hefir myrt.

    7:27 Hús hennar er helvegur, er liggur niður til heimkynna dauðans.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine