Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 8

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    8:1 Heyr, spekin kallar og hyggnin lætur raust sína gjalla.

    8:2 Uppi á hæðunum við veginn, þar sem göturnar kvíslast _ stendur hún.

    8:3 Við hliðin, þar sem gengið er út úr borginni, þar sem gengið er inn um dyrnar, kallar hún hátt:

    8:4 Til yðar, menn, tala ég, og raust mín hljómar til mannanna barna.

    8:5 Þér óreyndu, lærið hyggindi, og þér heimskingjar, lærið skynsemi.

    8:6 Hlýðið á, því að ég tala það sem göfuglegt er, og varir mínar tjá það sem rétt er.

    8:7 Því að sannleika mælir gómur minn og guðleysi er viðbjóður vörum mínum.

    8:8 Einlæg eru öll orð munns míns, í þeim er ekkert fals né fláræði.

    8:9 Öll eru þau einföld þeim sem skilning hefir, og blátt áfram fyrir þann sem hlotið hefir þekkingu.

    8:10 Takið á móti ögun minni fremur en á móti silfri og fræðslu fremur en úrvals gulli.

    8:11 Því að viska er betri en perlur, og engir dýrgripir jafnast á við hana.

    8:12 Ég, spekin, er handgengin hyggindunum og ræð yfir ráðdeildarsamri þekking.

    8:13 Að óttast Drottin er að hata hið illa, drambsemi og ofdramb og illa breytni og fláráðan munn _ það hata ég.

    8:14 Mín er ráðspekin og framkvæmdarsemin, ég er hyggnin, minn er krafturinn.

    8:15 Fyrir mína hjálp ríkja konungarnir og úrskurða höfðingjarnir réttvíslega.

    8:16 Fyrir mína hjálp stjórna stjórnendurnir og tignarmennin _ allir valdsmenn á jörðu.

    8:17 Ég elska þá sem mig elska, og þeir sem leita mín, finna mig.

    8:18 Auður og heiður eru hjá mér, ævagamlir fjármunir og réttlæti.

    8:19 Ávöxtur minn er betri en gull og gimsteinar og eftirtekjan eftir mig betri en úrvals silfur.

    8:20 Ég geng á götu réttlætisins, á stigum réttarins miðjum,

    8:21 til þess að gefa þeim sanna auðlegð, er elska mig, og fylla forðabúr þeirra.

    8:22 Drottinn skóp mig í upphafi vega sinna, á undan öðrum verkum sínum, fyrir alda öðli.

    8:23 Frá eilífð var ég sett til valda, frá upphafi, áður en jörðin var til.

    8:24 Ég fæddist áður en hafdjúpin urðu til, þá er engar vatnsmiklar lindir voru til.

    8:25 Áður en fjöllunum var hleypt niður, á undan hæðunum fæddist ég,

    8:26 áður en hann skapaði völl og vengi og fyrstu moldarkekki jarðríkis.

    8:27 Þegar hann gjörði himininn, þá var ég þar, þegar hann setti hvelfinguna yfir hafdjúpið,

    8:28 þegar hann festi skýin uppi, þegar uppsprettur hafdjúpsins komust í skorður,

    8:29 þegar hann setti hafinu takmörk, til þess að vötnin færu eigi lengra en hann bauð, þegar hann festi undirstöður jarðar.

    8:30 Þá stóð ég honum við hlið sem verkstýra, og ég var yndi hans dag hvern, leikandi mér fyrir augliti hans alla tíma,

    8:31 leikandi mér á jarðarkringlu hans, og hafði yndi mitt af mannanna börnum.

    8:32 Og nú, þér yngismenn, hlýðið mér, því að sælir eru þeir, sem varðveita vegu mína.

    8:33 Hlýðið á aga, svo að þér verðið vitrir, og látið hann eigi sem vind um eyrun þjóta.

    8:34 Sæll er sá maður, sem hlýðir mér, sem vakir daglega við dyr mínar og geymir dyrastafa minna.

    8:35 Því að sá sem mig finnur, finnur lífið og hlýtur blessun af Drottni.

    8:36 En sá sem missir mín, skaðar sjálfan sig. Allir þeir, sem hata mig, elska dauðann.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine