Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 9

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    9:1 Spekin hefir reist sér hús, höggvið til sjö stólpa sína.

    9:2 Hún hefir slátrað sláturfé sínu, byrlað vín sitt, já, hún hefir þegar búið borð sitt.

    9:3 Hún hefir sent út þernur sínar, hún kallar á háum stöðum í borginni:

    9:4 ,,Hver, sem óreyndur er, komi hingað!`` Við þann, sem óvitur er, segir hún:

    9:5 ,,Komið, etið mat minn og drekkið vínið, sem ég hefi byrlað.

    9:6 Látið af heimskunni, þá munuð þér lifa, og fetið veg hyggindanna.``

    9:7 Sá sem áminnir spottara, bakar sér smán, og þeim sem ávítar óguðlegan, verður það til vansa.

    9:8 Ávíta eigi spottarann, svo að hann hati þig eigi, ávíta hinn vitra, og hann mun elska þig.

    9:9 Gef hinum vitra, þá verður hann að vitrari, fræð hinn réttláta, og hann mun auka lærdóm sinn.

    9:10 Ótti Drottins er upphaf viskunnar og að þekkja Hinn heilaga eru hyggindi.

    9:11 Því að fyrir mitt fulltingi munu dagar þínir verða margir og ár lífs þíns aukast.

    9:12 Sért þú vitur, þá ert þú vitur þér til góðs, en sért þú spottari, þá mun það bitna á þér einum.

    9:13 Frú Heimska er óhemja, einföld og veit ekkert.

    9:14 Hún situr úti fyrir húsdyrum sínum, á stól uppi á háu stöðunum í borginni

    9:15 til þess að kalla á þá, sem um veginn fara, þá er ganga beint áfram leið sína:

    9:16 ,,Hver sem óreyndur er, komi hingað!`` og við þann sem óvitur er, segir hún:

    9:17 ,,Stolið vatn er sætt, og lostætt er launetið brauð.``

    9:18 Og hann veit ekki, að þar eru hinir framliðnu, að þeir sem hún hefir boðið heim, eru í djúpum Heljar.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine