Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 19

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    19:1 Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni, heldur en lævís lygari og heimskur að auki.

    19:2 Kapp er best með forsjá, og sá sem hraðar sér, misstígur sig.

    19:3 Flónska mannsins steypir fyrirtækjum hans, en hjarta hans illskast við Drottin.

    19:4 Auður fjölgar vinum, en fátækur maður verður vinum horfinn.

    19:5 Falsvottur sleppur ekki óhegndur, og sá sem fer með lygar, kemst ekki undan.

    19:6 Margir reyna að koma sér í mjúkinn hjá tignarmanninum, og allir eru vinir þess, sem gjafir gefur.

    19:7 Allir bræður hins snauða hata hann, hversu miklu fremur firrast þá vinir hans hann.

    19:8 Sá sem aflar sér hygginda, elskar líf sitt, sá sem varðveitir skynsemi, mun gæfu hljóta.

    19:9 Falsvottur sleppur ekki óhegndur, og sá sem fer með lygar, tortímist.

    19:10 Sællífi hæfir eigi heimskum manni, hvað þá þræli að drottna yfir höfðingjum.

    19:11 Hyggni mannsins gjörir hann seinan til reiði, og það er honum til frægðar að ganga fram hjá mótgjörðum.

    19:12 Konungsreiði er eins og ljónsöskur, en hylli hans sem dögg á grasi.

    19:13 Heimskur sonur er föður sínum sönn óhamingja, og konuþras er sífelldur þakleki.

    19:14 Hús og auður er arfur frá feðrunum, en skynsöm kona er gjöf frá Drottni.

    19:15 Letin svæfir þungum svefni, og iðjulaus maður mun hungur þola.

    19:16 Sá sem varðveitir boðorðið, varðveitir líf sitt, en sá deyr, sem ekki hefir gát á vegum sínum.

    19:17 Sá lánar Drottni, er líknar fátækum, og hann mun launa honum góðverk hans.

    19:18 Aga þú son þinn, því að enn er von, en farðu eigi svo langt, að þú deyðir hann.

    19:19 Sá sem illa reiðist, verður að greiða sekt, því að ætlir þú að bjarga, gjörir þú illt verra.

    19:20 Hlýð þú ráðum og tak umvöndun, til þess að þú verðir vitur eftirleiðis.

    19:21 Mörg eru áformin í mannshjartanu, en ráðsályktun Drottins stendur.

    19:22 Unun mannsins er kærleiksverk hans, og betri er fátækur maður en lygari.

    19:23 Ótti Drottins leiðir til lífs, þá hvílist maðurinn mettur, verður ekki fyrir neinni ógæfu.

    19:24 Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina, en ekki nennir hann að bera hana aftur upp að munninum.

    19:25 Sláir þú spottarann, verður hinn einfaldi hygginn, og sé vandað um við skynsaman mann, lærir hann hyggindi.

    19:26 Sá sem misþyrmir föður sínum og rekur burt móður sína, slíkur sonur fremur smán og svívirðing.

    19:27 Hættu, son minn, að hlýða á umvöndun, ef það er til þess eins, að þú brjótir á móti skynsamlegum orðum.

    19:28 Samviskulaus vottur gjörir gys að réttinum, og munnur óguðlegra gleypir rangindi.

    19:29 Refsidómar eru búnir spotturunum og högg baki heimskingjanna.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine