Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 18

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    18:1 Sérlyndur maður fer að sínum munum, hann illskast við öllu, sem hyggilegt er.

    18:2 Heimskinginn hefir engar mætur á hyggindum, heldur á því að gjöra kunnar hugsanir sínar.

    18:3 Þar sem hinn óguðlegi kemur, þar kemur og fyrirlitning, og með smáninni kemur skömm.

    18:4 Djúp vötn eru orð af manns munni, lind viskunnar er sem rennandi lækur.

    18:5 Það er ekki rétt að draga taum hins óguðlega, að halla rétti hins saklausa í dómi.

    18:6 Varir heimskingjans valda deilum, og munnur hans kallar á högg.

    18:7 Munnur heimskingjans verður honum að tjóni, og varir hans eru snara fyrir líf hans.

    18:8 Orð rógberans eru eins og sælgæti, og þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans.

    18:9 Sá sem tómlátur er í verki sínu, er skilgetinn bróðir eyðsluseggsins.

    18:10 Nafn Drottins er sterkur turn, þangað hleypur hinn réttláti og er þar óhultur.

    18:11 Auður ríks manns er honum öflugt vígi og ókleifur múrveggur í sjálfs hans ímyndun.

    18:12 Ofmetnaður hjartans er undanfari falls, en auðmýkt er undanfari virðingar.

    18:13 Svari einhver áður en hann heyrir, þá er honum það flónska og skömm.

    18:14 Hugrekki mannsins heldur honum uppi í sjúkdómi hans, en dapurt geð, hver fær borið það?

    18:15 Hjarta hins hyggna aflar sér þekkingar, og eyra hinna vitru leitar þekkingar.

    18:16 Gjöf sem maður gefur, rýmir til fyrir honum og leiðir hann fram fyrir stórmenni.

    18:17 Hinn fyrri sýnist hafa á réttu að standa í þrætumáli sínu, en síðan kemur mótpartur hans og rannsakar röksemdir hans.

    18:18 Hlutkestið gjörir enda á deilum og sker úr milli sterkra.

    18:19 Erfiðara er að ávinna svikinn bróður en að vinna rammbyggða borg, og deilur slíkra manna eru sem slagbrandar fyrir hallardyrum.

    18:20 Kviður mannsins mettast af ávexti munns hans, af gróðri varanna mettast hann.

    18:21 Dauði og líf eru á tungunnar valdi, og sá sem hefir taum á henni, mun eta ávöxt hennar.

    18:22 Sá sem eignast konu, eignast gersemi, og hlýtur náðargjöf af Drottni.

    18:23 Hinn fátæki mælir bljúgum bænarorðum, en hinn ríki svarar með hörku.

    18:24 Að vera allra vinur er til tjóns, en til er ástvinur, sem er tryggari en bróðir.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine