Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 17

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    17:1 Betri er þurr brauðbiti með ró en fullt hús af fórnarkjöti með deilum.

    17:2 Hygginn þræll verður drottnari yfir spilltum syni, og hann tekur erfðahlut með bræðrunum.

    17:3 Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið, en Drottinn prófar hjörtun.

    17:4 Illmennið gefur gaum að fláræðis-vörum, lygin hlýðir á glæpa-tungu.

    17:5 Sá sem gjörir gys að fátækum, óvirðir þann er skóp hann, og sá sem gleðst yfir ógæfu, sleppur ekki óhegndur.

    17:6 Barnabörnin eru kóróna öldunganna, og feðurnir eru heiður barnanna.

    17:7 Ekki hæfa heimskum manni stóryrði, hve miklu síður göfgum manni lygavarir.

    17:8 Mútan er gimsteinn í augum þess er hana fær, hvert sem maður snýr sér með hana, kemur hann sínu fram.

    17:9 Sá sem breiðir yfir bresti, eflir kærleika, en sá sem ýfir upp sök, veldur vinaskilnaði.

    17:10 Ávítur fá meira á hygginn mann en hundrað högg á heimskingja.

    17:11 Uppreisnarmaðurinn hyggur á illt eitt, en grimmur sendiboði mun sendur verða móti honum.

    17:12 Betra er fyrir mann að mæta birnu, sem rænd er húnum sínum, heldur en heimskingja í flónsku hans.

    17:13 Sá sem launar gott með illu, frá hans húsi víkur ógæfan eigi.

    17:14 Þegar deila byrjar, er sem tekin sé úr stífla, lát því af þrætunni, áður en rifrildi hefst.

    17:15 Sá sem sekan sýknar, og sá sem saklausan sakfellir, þeir eru báðir Drottni andstyggð.

    17:16 Hvað stoða peningar í hendi heimskingjans til þess að kaupa speki, þar sem vitið er ekkert?

    17:17 Vinur elskar ætíð og í nauðum er hann sem bróðir.

    17:18 Óvitur maður er sá, er til handsala gengur, sá sem gengur í ábyrgð fyrir náunga sinn.

    17:19 Sá elskar yfirsjón, sem þrætu elskar, sá sem háar gjörir dyr sínar, sækist eftir hruni.

    17:20 Rangsnúið hjarta öðlast enga gæfu, og sá sem hefir fláráða tungu, hrapar í ógæfu.

    17:21 Sá sem getur af sér heimskingja, honum verður það til mæðu, og faðir glópsins fagnar ekki.

    17:22 Glatt hjarta veitir góða heilsubót, en dapurt geð skrælir beinin.

    17:23 Hinn óguðlegi þiggur mútur á laun til þess að beygja leiðir réttvísinnar.

    17:24 Hygginn maður hefir viskuna fyrir framan sig, en augu heimskingjans eru úti á heimsenda.

    17:25 Heimskur sonur er föður sínum til sorgar og þeirri til angurs, er ól hann.

    17:26 Það eitt að sekta saklausan er ekki gott, en að berja tignarmenni tekur þó út yfir.

    17:27 Fámálugur maður er hygginn, og geðrór maður er skynsamur.

    17:28 Afglapinn getur jafnvel álitist vitur, ef hann þegir, hygginn, ef hann lokar vörunum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine