Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 23

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    23:1 Þegar þú situr til borðs með valdsherra, þá gæt þess vel, hvern þú hefir fyrir framan þig,

    23:2 og set þér hníf á barka, ef þú ert matmaður.

    23:3 Lát þig ekki langa í kræsingar hans, því að þær eru svikul fæða.

    23:4 Streist þú ekki við að verða ríkur, hættu að verja viti þínu til þess.

    23:5 Hvort skulu augu þín hvarfla til auðsins, sem er svo stopull? Því að sannlega gjörir hann sér vængi eins og örn, sem flýgur til himins.

    23:6 Et eigi brauð hjá nískum manni og lát þig ekki langa í kræsingar hans,

    23:7 því að hann er eins og maður, sem reiknar með sjálfum sér. ,,Et og drekk!`` segir hann við þig, en hjarta hans er eigi með þér.

    23:8 Bitanum, sem þú hefir etið, verður þú að æla upp aftur, og blíðmælum þínum hefir þú á glæ kastað.

    23:9 Tala þú eigi fyrir eyrum heimskingjans, því að hann fyrirlítur hyggindi ræðu þinnar.

    23:10 Fær þú eigi úr stað landamerki ekkjunnar og gakk þú eigi inn á akra munaðarleysingjanna,

    23:11 því að lausnari þeirra er sterkur _ hann mun flytja mál þeirra gegn þér.

    23:12 Snú þú hjarta þínu að umvöndun og eyrum þínum að vísdómsorðum.

    23:13 Spara eigi aga við sveininn, því ekki deyr hann, þótt þú sláir hann með vendinum.

    23:14 Þú slær hann að sönnu með vendinum, en þú frelsar líf hans frá Helju.

    23:15 Son minn, þegar hjarta þitt verður viturt, þá gleðst ég líka í hjarta mínu,

    23:16 og nýru mín fagna, er varir þínar mæla það sem rétt er.

    23:17 Lát eigi hjarta þitt öfunda syndara, heldur ástunda guðsótta á degi hverjum,

    23:18 því að vissulega er enn framtíð fyrir hendi, og von þín mun eigi að engu verða.

    23:19 Heyr þú, son minn, og ver vitur og stýr hjarta þínu rétta leið.

    23:20 Ver þú ekki með drykkjurútum, með þeim, sem hvoma í sig kjöt,

    23:21 því að drykkjurútar og mathákar verða snauðir, og svefnmók klæðir í tötra.

    23:22 Hlýð þú föður þínum, sem hefir getið þig, og fyrirlít ekki móður þína, þótt hún sé orðin gömul.

    23:23 Kaup þú sannleika, og sel hann ekki, visku, aga og hyggindi.

    23:24 Faðir réttláts manns fagnar, og sá sem gat vitran son, gleðst af honum.

    23:25 Gleðjist faðir þinn og móðir þín og fagni hún, sem fæddi þig.

    23:26 Son minn, gef mér hjarta þitt, og lát vegu mína vera þér geðfellda.

    23:27 Því að skækja er djúp gröf og léttúðardrós þröngur pyttur.

    23:28 Já, hún liggur í leyni eins og ræningi og fjölgar hinum ótrúu meðal mannanna.

    23:29 Hver æjar? hver veinar? hver á í deilum? hver kvartar? hver fær sár að þarflausu? hver rauð augu?

    23:30 Þeir sem sitja við vín fram á nætur, þeir sem koma saman til að bergja á krydduðum drykkjum.

    23:31 Horf þú ekki á vínið, hve rautt það er, hversu það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður.

    23:32 Að síðustu bítur það sem höggormur og spýtir eitri sem naðra.

    23:33 Augu þín munu sjá kynlega hluti, og hjarta þitt mun mæla fláræði.

    23:34 Og þú munt vera eins og sá, sem liggur úti í miðju hafi, já, eins og sá, er liggur efst uppi á siglutré.

    23:35 ,,Þeir hafa slegið mig, ég kenndi ekkert til, þeir hafa barið mig, ég varð þess ekki var. Hvenær mun ég vakna? Ég vil meira vín!``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine