Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 24

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    24:1 Öfunda ekki vonda menn og lát þig ekki langa til að vera með þeim,

    24:2 því að hjarta þeirra býr yfir ofríkisverkum, og varir þeirra mæla ógæfu.

    24:3 Fyrir speki verður hús reist, og fyrir hyggni verður það staðfast,

    24:4 fyrir þekking fyllast forðabúrin alls konar dýrum og yndislegum fjármunum.

    24:5 Vitur maður er betri en sterkur og fróður maður betri en aflmikill,

    24:6 því að holl ráð skalt þú hafa, er þú heyr stríð, og þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel.

    24:7 Viskan er afglapanum ofviða, í borgarhliðinu lýkur hann ekki upp munni sínum.

    24:8 Þann sem leggur stund á að gjöra illt, kalla menn varmenni.

    24:9 Syndin er fíflslegt fyrirtæki, og spottarinn er mönnum andstyggð.

    24:10 Látir þú hugfallast á neyðarinnar degi, þá er máttur þinn lítill.

    24:11 Frelsaðu þá, sem leiddir eru fram til lífláts, og þyrm þeim, sem ganga skjögrandi að höggstokknum.

    24:12 Segir þú: ,,Vér vissum það eigi,`` _ sá sem vegur hjörtun, hann verður sannarlega var við það, og sá sem vakir yfir sálu þinni, hann veit það og mun gjalda manninum eftir verkum hans.

    24:13 Et þú hunang, son minn, því að það er gott, og hunangsseimur er gómi þínum sætur.

    24:14 Nem á sama hátt speki fyrir sálu þína, finnir þú hana, er framtíð fyrir hendi, og von þín mun eigi að engu verða.

    24:15 Sit eigi, þú hinn óguðlegi, um bústað hins réttláta og eyðilegg ekki heimkynni hans,

    24:16 því að sjö sinnum fellur hinn réttláti og stendur aftur upp, en óguðlegir steypast í ógæfu.

    24:17 Gleð þig eigi yfir falli óvinar þíns, og hjarta þitt fagni eigi yfir því að hann steypist,

    24:18 svo að Drottinn sjái það ekki og honum mislíki, og hann snúi reiði sinni frá honum til þín.

    24:19 Reiðst ekki vegna illgjörðamanna, öfunda eigi óguðlega,

    24:20 því að vondur maður á enga framtíð fyrir höndum, á lampa óguðlegra slokknar.

    24:21 Son minn, óttastu Drottin og konunginn, samlaga þig ekki óróaseggjum,

    24:22 því að ógæfa þeirra ríður að þegar minnst varir, og ófarir beggja _ hver veit um þær?

    24:23 Þessir orðskviðir eru líka eftir spekinga. Hlutdrægni í dómi er ljót.

    24:24 Þeim sem segir við hinn seka: ,,Þú hefir rétt fyrir þér!`` honum formæla menn, honum bölvar fólk.

    24:25 En þeim sem hegna eins og ber, mun vel vegna, yfir þá kemur ríkuleg blessun.

    24:26 Sá kyssir á varirnar, sem veitir rétt svör.

    24:27 Annastu verk þitt utan húss og ljúk því á akrinum, síðan getur þú byggt hús þitt.

    24:28 Vertu eigi vottur gegn náunga þínum að ástæðulausu, eða mundir þú vilja svíkja með vörum þínum?

    24:29 Seg þú ekki: ,,Eins og hann gjörði mér, eins ætla ég honum að gjöra, ég ætla að endurgjalda manninum eftir verkum hans!``

    24:30 Mér varð gengið fram hjá akri letingja nokkurs og fram hjá víngarði óviturs manns.

    24:31 Og sjá, hann var allur vaxinn klungrum, hann var alþakinn netlum, og steingarðurinn umhverfis hann var hruninn.

    24:32 En ég varð þess var, veitti því athygli, sá það og lét mér það að kenningu verða:

    24:33 Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast,

    24:34 þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi og skorturinn eins og vopnaður maður.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine