Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 25

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    25:1 Þetta eru líka orðskviðir Salómons, er menn Hiskía Júdakonungs hafa safnað.

    25:2 Guði er það heiður að dylja mál, en konungum heiður að rannsaka mál.

    25:3 Eins og hæð himins og dýpt jarðar, svo eru konungahjörtun órannsakanleg.

    25:4 Sé sorinn tekinn úr silfrinu, þá fær smiðurinn ker úr því.

    25:5 Séu hinir óguðlegu teknir burt frá augliti konungsins, þá mun hásæti hans staðfestast fyrir réttlæti.

    25:6 Stær þig eigi frammi fyrir konunginum og ryðst eigi í rúm stórmenna,

    25:7 því að betra er að menn segi við þig: ,,Fær þig hingað upp!`` heldur en að menn gjöri þér læging frammi fyrir tignarmanni. Hvað sem augu þín kunna að hafa séð,

    25:8 þá ver eigi skjótur til málsóknar, því að hvað ætlar þú síðan að gjöra, þá er náungi þinn gjörir þér sneypu?

    25:9 Rek þú mál þitt gegn náunga þínum, en ljósta eigi upp leyndarmáli annars manns,

    25:10 til þess að sá sem heyrir það, smáni þig ekki og þú losnir aldrei við illan orðróm.

    25:11 Gullepli í skrautlegum silfurskálum _ svo eru orð í tíma töluð.

    25:12 Eins og gullhringur og skartgripur af skíru gulli, svo er vitur áminnandi heyranda eyra.

    25:13 Eins og snjósvali um uppskerutímann, svo er áreiðanlegur sendimaður þeim er sendir hann, því að hann hressir sál húsbónda síns.

    25:14 Ský og vindur, og þó engin rigning _ svo er sá, sem hrósar sér af gjafmildi, en gefur þó ekkert.

    25:15 Með þolinmæði verður höfðingja talið hughvarf, og mjúk tunga mylur bein.

    25:16 Finnir þú hunang, þá et sem þér nægir, svo að þú verðir ekki ofsaddur af því og ælir því upp aftur.

    25:17 Stíg sjaldan fæti þínum í hús náunga þíns, svo að hann verði ekki leiður á þér og hati þig.

    25:18 Hamar og sverð og hvöss ör _ svo er maður, sem ber falsvitni gegn náunga sínum.

    25:19 Molnandi tönn og hrasandi fótur _ svo er traust á svikara á neyðarinnar degi.

    25:20 Að fara úr fötum í kalsaveðri _ að hella ediki út í saltpétur _ eins er að syngja skapvondum ljóð.

    25:21 Ef óvin þinn hungrar, þá gef honum að eta, og ef hann þyrstir, þá gef honum að drekka,

    25:22 því að þú safnar glóðum elds yfir höfuð honum, og Drottinn mun endurgjalda þér það.

    25:23 Norðanvindurinn leiðir fram regn og launskraf reiðileg andlit.

    25:24 Betri er vist í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu.

    25:25 Eins og kalt vatn er dauðþyrstum manni, svo er góð fregn af fjarlægu landi.

    25:26 Eins og grugguð lind og skemmdur brunnur, svo er réttlátur maður, sem titrar frammi fyrir óguðlegum manni.

    25:27 Það er ekki gott að eta of mikið hunang, ver því spar á hólið.

    25:28 Eins og borg, sem múrarnir hafa verið brotnir utan af, eins er sá maður, sem eigi hefir stjórn á skapsmunum sínum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine