Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 26

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    26:1 Eins og snjór um sumar og eins og regn um uppskeru, eins illa á sæmd við heimskan mann.

    26:2 Eins og spörfugl flögrar, eins og svala flýgur, eins er um óverðskuldaða formæling _ hún verður eigi að áhrínsorðum.

    26:3 Svipan hæfir hestinum og taumurinn asnanum _ en vöndurinn baki heimskingjanna.

    26:4 Svara þú ekki heimskingjanum eftir fíflsku hans, svo að þú verðir ekki honum jafn.

    26:5 Svara þú heimskingjanum eftir fíflsku hans, svo að hann haldi ekki, að hann sé vitur.

    26:6 Sá höggur af sér fæturna og fær að súpa á ranglæti, sem sendir orð með heimskingja.

    26:7 Eins og lærleggir hins lama hanga máttlausir, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.

    26:8 Sá sem sýnir heimskum manni sæmd, honum fer eins og þeim, er bindur stein í slöngvu.

    26:9 Eins og þyrnir, sem stingst upp í höndina á drukknum manni, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.

    26:10 Eins og skytta, sem hæfir allt, svo er sá sem leigir heimskingja, og sá er leigir vegfarendur.

    26:11 Eins og hundur, sem snýr aftur til spýju sinnar, svo er heimskingi, sem endurtekur fíflsku sína.

    26:12 Sjáir þú mann, sem þykist vitur, þá er meiri von um heimskingja en hann.

    26:13 Letinginn segir: ,,Óargadýr er á veginum, ljón á götunum.``

    26:14 Hurðin snýst á hjörunum og letinginn í hvílu sinni.

    26:15 Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina, en honum verður þungt um að bera hana aftur upp að munninum.

    26:16 Latur maður þykist vitrari en sjö, sem svara hyggilega.

    26:17 Sá, sem kemst í æsing út af deilu, sem honum kemur ekki við, hann er eins og sá, sem tekur um eyrun á hundi, er hleypur fram hjá.

    26:18 Eins og óður maður, sem kastar tundurörvum, banvænum skeytum,

    26:19 eins er sá maður, er svikið hefir náunga sinn og segir síðan: ,,Ég er bara að gjöra að gamni mínu.``

    26:20 Þegar eldsneytið þrýtur, slokknar eldurinn, og þegar enginn er rógberinn, stöðvast deilurnar.

    26:21 Eins og kol þarf til glóða og við til elds, svo þarf þrætugjarnan mann til að kveikja deilur.

    26:22 Orð rógberans eru eins og sælgæti, og þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans.

    26:23 Eldheitir kossar og illt hjarta, það er sem sorasilfur utan af leirbroti.

    26:24 Með vörum sínum gjörir hatursmaðurinn sér upp vinalæti, en í hjarta sínu hyggur hann á svik.

    26:25 Þegar hann mælir fagurt, þá trú þú honum ekki, því að sjö andstyggðir eru í hjarta hans.

    26:26 Þótt hatrið hylji sig hræsni, þá verður þó illska þess opinber á dómþinginu.

    26:27 Sá sem grefur gröf, fellur í hana, og steinninn fellur aftur í fang þeim, er veltir honum.

    26:28 Lygin tunga hatar þá, er hún hefir sundur marið, og smjaðrandi munnur veldur glötun.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine