Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 27

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    27:1 Vertu ekki hróðugur af morgundeginum, því að þú veist ekki, hvað dagurinn ber í skauti sínu.

    27:2 Lát aðra hrósa þér og ekki þinn eigin munn, óviðkomandi menn, en ekki þínar eigin varir.

    27:3 Steinar eru þungir, og sandurinn sígur í, en gremja afglapans er þyngri en hvort tveggja.

    27:4 Heiftin er grimm, og reiðin er svæsin, en hver fær staðist öfundina?

    27:5 Betri er opinber ofanígjöf en elska sem leynt er.

    27:6 Vel meint eru vinar sárin, en viðbjóðslegir kossar hatursmannsins.

    27:7 Saddur maður treður hunangsseim undir fótum, en hungruðum manni þykir allt beiskt sætt.

    27:8 Eins og fugl, sem floginn er burt úr hreiðri sínu, svo er maður, sem flúinn er burt af heimili sínu.

    27:9 Ilmolía og reykelsi gleðja hjartað, en indælli er vinur en ilmandi viður.

    27:10 Yfirgef eigi vin þinn né vin föður þíns og gakk eigi í hús bróður þíns á óheilladegi þínum. Betri er nábúi í nánd en bróðir í fjarlægð.

    27:11 Vertu vitur, sonur minn, og gleð hjarta mitt, svo að ég geti svarað þeim orði, sem smána mig.

    27:12 Vitur maður sér ógæfuna og felur sig, en einfeldningarnir halda áfram og fá að kenna á því.

    27:13 Tak þú skikkjuna af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, tak veð af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir útlending.

    27:14 Hver sem blessar náunga sinn snemma morguns með hárri raustu, það skal metið við hann sem formæling.

    27:15 Sífelldur þakleki í rigningatíð og þrasgjörn kona _ er hvað öðru líkt.

    27:16 Sá er hana stöðvaði, gæti stöðvað vindinn og haldið olíu í hægri hendi sinni.

    27:17 Járn brýnir járn, og maður brýnir mann.

    27:18 Sá sem gætir fíkjutrés, mun eta ávöxt þess, og sá sem þjónar húsbónda sínum með virktum, mun heiður hljóta.

    27:19 Eins og andlit horfir við andliti í vatni, svo er hjarta eins manns gagnvart öðrum.

    27:20 Dánarheimar og undirdjúpin eru óseðjandi, svo eru og augu mannsins óseðjandi.

    27:21 Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið, og maðurinn er dæmdur eftir orðstír hans.

    27:22 Þótt þú steyttir afglapann í mortéli með stauti innan um grjón, þá mundi fíflska hans ekki við hann skilja.

    27:23 Haf nákvæmar gætur á útliti sauða þinna og veit hjörðunum athygli þína.

    27:24 Því að auður varir ekki eilíflega, né heldur kóróna frá kyni til kyns.

    27:25 Sé heyið komið undan og grængresi komið í ljós, og hafi jurtir fjallanna verið hirtar,

    27:26 þá átt þú lömb þér til klæðnaðar og geithafra til þess að kaupa fyrir akur

    27:27 og nóga geitamjólk þér til fæðslu, til fæðslu heimili þínu, og til viðurlífis þernum þínum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine