Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 28

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    28:1 Hinir óguðlegu flýja, þótt enginn elti þá, en hinir réttlátu eru öruggir eins og ungt ljón.

    28:2 Þegar land gengur undan drottnara sínum, gjörast þar margir höfðingjar, en meðal skynsamra og hygginna manna mun góð skipan lengi standa.

    28:3 Maður sem er fátækur og kúgar snauða, er eins og regn, sem skolar burt korninu, en veitir ekkert brauð.

    28:4 Þeir sem yfirgefa lögmálið, hrósa óguðlegum, en þeir sem varðveita lögmálið, eru æfir út af þeim.

    28:5 Illmenni skilja ekki hvað rétt er, en þeir sem leita Drottins, skilja allt.

    28:6 Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni, heldur en sá, sem beitir undirferli og er þó ríkur.

    28:7 Sá sem varðveitir lögmálið, er hygginn sonur, en sá sem leggur lag sitt við óhófsmenn, gjörir föður sínum smán.

    28:8 Sá sem eykur auð sinn með fjárleigu og okri, safnar honum handa þeim, sem líknsamur er við fátæka.

    28:9 Sá sem snýr eyra sínu frá til þess að heyra ekki lögmálið, _ jafnvel bæn hans er andstyggð.

    28:10 Sá sem tælir falslausa menn út á vonda leið, hann fellur sjálfur í gröf sína, en ráðvandir munu hljóta góða arfleifð.

    28:11 Ríkur maður þykist vitur, en snauður maður, sem er hygginn, sér við honum.

    28:12 Þegar hinir réttlátu fagna, er mikið um dýrðir, en þegar óguðlegir komast upp, fela menn sig.

    28:13 Sá sem dylur yfirsjónir sínar, verður ekki lángefinn, en sá sem játar þær og lætur af þeim, mun miskunn hljóta.

    28:14 Sæll er sá maður, sem ávallt er var um sig, en sá sem herðir hjarta sitt, fellur í ógæfu.

    28:15 Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn, svo er óguðlegur drottnari yfir lítilsigldum lýð.

    28:16 Höfðingi, sem hefir litlar tekjur, er ríkur að kúgun, sá sem hatar rangfenginn ávinning, mun langlífur verða.

    28:17 Sá maður, sem blóðsök hvílir þungt á, er á flótta fram á grafarbarminn; enginn dvelji hann.

    28:18 Sá sem breytir ráðvandlega, mun frelsast, en sá sem beitir undirferli, fellur í gryfju.

    28:19 Sá sem yrkir land sitt, mettast af brauði, en sá sem sækist eftir hégómlegum hlutum, mettast af fátækt.

    28:20 Áreiðanlegur maður blessast ríkulega, en sá sem fljótt vill verða ríkur, sleppur ekki við refsingu.

    28:21 Hlutdrægni er ljót, en þó fremja menn ranglæti fyrir einn brauðbita.

    28:22 Öfundsjúkur maður flýtir sér að safna auði og veit ekki að örbirgð muni yfir hann koma.

    28:23 Sá sem ávítar mann, mun á síðan öðlast meiri hylli heldur er tungumjúkur smjaðrari.

    28:24 Sá sem rænir foreldra sína og segir: ,,Það er engin synd!`` hann er stallbróðir eyðandans.

    28:25 Ágjarn maður vekur deilur, en sá sem treystir Drottni, mettast ríkulega.

    28:26 Sá sem treystir eigin hyggjuviti, er heimskingi, en sá sem breytir viturlega, mun undan komast.

    28:27 Sá sem gefur fátækum, líður engan skort, en þeim sem byrgir augu sín, koma margar óbænir.

    28:28 Þegar hinir óguðlegu komast upp, fela menn sig, en þegar þeir tortímast, fjölgar réttlátum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine