Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 30

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    30:1 Orð Agúrs Jakesonar. Guðmælið. Maðurinn segir: Ég hefi streitst, ó Guð, ég hefi streitst, ó Guð, og er að þrotum kominn.

    30:2 Því að ég er of heimskur til að geta talist maður, og ég hefi eigi mannsvit,

    30:3 ég hefi eigi lært speki, svo að ég hafi þekking á Hinum heilaga.

    30:4 Hver hefir stigið upp til himna og komið niður? Hver hefir safnað vindinum í greipar sínar? Hver hefir bundið vatnið í skikkju sína? Hver hefir reist öll endimörk jarðar? Hvað heitir hann og hvað heitir sonur hans _ fyrst þú veist það?

    30:5 Sérhvert orð Guðs er hreint, hann er skjöldur þeim, er leita hælis hjá honum.

    30:6 Bæt engu við orð hans, til þess að hann ávíti þig eigi og þú standir sem lygari.

    30:7 Um tvennt bið ég þig, synja mér þess eigi, áður en ég dey:

    30:8 Lát fals og lygaorð vera fjarri mér, gef mér hvorki fátækt né auðæfi, en veit mér minn deildan verð.

    30:9 Ég kynni annars að verða of saddur og afneita og segja: ,,Hver er Drottinn?`` eða ef ég yrði fátækur, kynni ég að stela og misbjóða nafni Guðs míns.

    30:10 Ræg eigi þjóninn við húsbónda hans, svo að hann biðji þér ekki óbæna og þú verðir að gjalda.

    30:11 Til er það kyn, sem bölvar föður sínum og blessar ekki móður sína,

    30:12 kyn, sem þykist vera hreint og hefir þó eigi þvegið af sér saurinn

    30:13 kyn, sem lyftir hátt augunum og sperrir upp augnahárin,

    30:14 kyn, sem hefir sverð að tönnum og hnífa að jöxlum til þess að uppeta hina voluðu úr landinu og hina fátæku burt frá mönnunum.

    30:15 Blóðsugan á tvær dætur, sem heita Gefðu! Gefðu! Þrennt er til, sem er óseðjandi, fernt, sem aldrei segir: ,,Það er nóg!`` _

    30:16 Helja og móðurlíf óbyrjunnar, jörðin, sem aldrei seðst af vatni, og eldurinn, sem aldrei segir: ,,Það er nóg!``

    30:17 Það auga, sem gjörir gys að föður sínum og fyrirlítur hlýðni við móður sína, mega hrafnarnir við lækinn kroppa út og arnarungarnir eta.

    30:18 Þrennt er, sem mér virðist undursamlegt, og fernt, sem ég skil eigi:

    30:19 vegur arnarins um loftið, vegur höggormsins yfir klettinn, vegur skipsins um reginhaf og vegur manns hjá konu.

    30:20 Þannig er atferli hórkonunnar: Hún neytir, þurrkar sér um munninn og segir: ,,Ég hefi ekkert rangt gjört.``

    30:21 Undan þrennu nötrar jörðin, og undir fernu getur hún ekki risið:

    30:22 undir þræli, þegar hann verður konungur, og guðlausum manni, þegar hann mettast brauði,

    30:23 undir smáðri konu, þegar hún giftist, og þernu, þegar hún bolar burt húsmóður sinni.

    30:24 Fjórir eru smáir á jörðinni, og þó eru þeir vitrir spekingar:

    30:25 Maurarnir eru kraftlítil þjóð, og þó afla þeir sér fæðunnar á sumrin.

    30:26 Stökkhérarnir eru þróttlítil þjóð, og þó gjöra þeir sér híbýli í klettunum.

    30:27 Engispretturnar hafa engan konung, og þó fer allur hópurinn út í röð og reglu.

    30:28 Ferfætlunni getur þú náð með tómum höndunum, og þó er hún í konungahöllum.

    30:29 Þrír eru þeir, sem tigulegir eru á velli, og fjórir, sem tigulegir eru í gangi:

    30:30 ljónið, hetjan meðal dýranna, er eigi hopar fyrir neinni skepnu,

    30:31 lendgyrtur hesturinn og geithafurinn og konungur, er enginn fær móti staðið.

    30:32 Hafir þú heimskast til að upphefja sjálfan þig, eða hafir þú gjört það af ásettu ráði, þá legg höndina á munninn!

    30:33 Því að þrýstingur á mjólk framleiðir smjör, og þrýstingur á nasir framleiðir blóð, og þrýstingur á reiði framleiðir deilu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine