Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 31

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    31:1 Orð Lemúels konungs í Massa, er móðir hans kenndi honum.

    31:2 Hvað á ég að segja þér, sonur minn? og hvað, sonur kviðar míns? og hvað, sonur áheita minna?

    31:3 Gef ekki konum kraft þinn, né ástarhót þín þeim er spilla konungum.

    31:4 Ekki sæmir konungum, Lemúel, ekki sæmir konungum að drekka vín, né höfðingjum áfengur drykkur.

    31:5 Þeir kynnu að drekka og gleyma lögunum og rangfæra málefni allra aumra manna.

    31:6 Gefið áfengan drykk þeim, sem kominn er í örþrot, og vín þeim, sem sorgbitnir eru.

    31:7 Drekki hann og gleymi fátækt sinni og minnist ekki framar mæðu sinnar.

    31:8 Ljúk þú upp munni þínum fyrir hinn mállausa, fyrir málefni allra þeirra manna, sem eru að örmagnast.

    31:9 Ljúk þú upp munni þínum, dæm með réttvísi og rétt þú hlut hinna voluðu og snauðu.

    31:10 Væna konu, hver hlýtur hana? hún er miklu meira virði en perlur.

    31:11 Hjarta manns hennar treystir henni, og ekki vantar að honum fénist.

    31:12 Hún gjörir honum gott og ekkert illt alla ævidaga sína.

    31:13 Hún sér um ull og hör og vinnur fúslega með höndum sínum.

    31:14 Hún er eins og kaupförin, sækir björgina langt að.

    31:15 Hún fer á fætur fyrir dag, skammtar heimilisfólki sínu og segir þernum sínum fyrir verkum.

    31:16 Hún hefir augastað á akri og kaupir hann, af ávexti handa sinna plantar hún víngarð.

    31:17 Hún gyrðir lendar sínar krafti og tekur sterklega til armleggjunum.

    31:18 Hún finnur, að atvinna hennar er arðsöm, á lampa hennar slokknar eigi um nætur.

    31:19 Hún réttir út hendurnar eftir rokknum, og fingur hennar grípa snælduna.

    31:20 Hún breiðir út lófann móti hinum bágstadda og réttir út hendurnar móti hinum snauða.

    31:21 Hún er ekki hrædd um heimilisfólk sitt, þótt snjói, því að allt heimilisfólk hennar er klætt skarlati.

    31:22 Hún býr sér til ábreiður, klæðnaður hennar er úr baðmull og purpura.

    31:23 Maður hennar er mikils metinn í borgarhliðunum, þá er hann situr með öldungum landsins.

    31:24 Hún býr til skyrtur og selur þær, og kaupmanninum fær hún belti.

    31:25 Kraftur og tign er klæðnaður hennar, og hún hlær að komandi degi.

    31:26 Hún opnar munninn með speki, og ástúðleg fræðsla er á tungu hennar.

    31:27 Hún vakir yfir því, sem fram fer á heimili hennar, og etur ekki letinnar brauð.

    31:28 Synir hennar ganga fram og segja hana sæla, maður hennar gengur fram og hrósar henni:

    31:29 ,,Margar konur hafa sýnt dugnað, en þú tekur þeim öllum fram!``

    31:30 Yndisþokkinn er svikull og fríðleikinn hverfull, en sú kona, sem óttast Drottin, á hrós skilið.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine