Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 109

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    109:1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Þú Guð lofsöngs míns, ver eigi hljóður,

    109:2 því að óguðlegan og svikulan munn opna þeir í gegn mér, tala við mig með ljúgandi tungu.

    109:3 Með hatursorðum umkringja þeir mig og áreita mig að ástæðulausu.

    109:4 Þeir launa mér elsku mína með ofsókn, en ég gjöri ekki annað en biðja.

    109:5 Þeir launa mér gott með illu og elsku mína með hatri.

    109:6 Set óguðlegan yfir mótstöðumann minn, og ákærandinn standi honum til hægri handar.

    109:7 Hann gangi sekur frá dómi og bæn hans verði til syndar.

    109:8 Dagar hans verði fáir, og annar hljóti embætti hans.

    109:9 Börn hans verði föðurlaus og kona hans ekkja.

    109:10 Börn hans fari á flæking og vergang, þau verði rekin burt úr rústum sínum.

    109:11 Okrarinn leggi snöru fyrir allar eigur hans, og útlendir fjandmenn ræni afla hans.

    109:12 Enginn sýni honum líkn, og enginn aumkist yfir föðurlausu börnin hans.

    109:13 Niðjar hans verði afmáðir, nafn hans útskafið í fyrsta ættlið.

    109:14 Misgjörðar feðra hans verði minnst af Drottni og synd móður hans eigi afmáð,

    109:15 séu þær ætíð fyrir sjónum Drottins og hann afmái minningu þeirra af jörðunni

    109:16 sakir þess, að hann mundi eigi eftir að sýna elsku, heldur ofsótti hinn hrjáða og snauða og hinn ráðþrota til þess að drepa hann.

    109:17 Hann elskaði bölvunina, hún bitni þá á honum, hann smáði blessunina, hún sé þá fjarri honum.

    109:18 Hann íklæddist bölvuninni sem kufli, hún læsti sig þá inn í innyfli hans sem vatn og í bein hans sem olía,

    109:19 hún verði honum sem klæði, er hann sveipar um sig, og sem belti, er hann sífellt gyrðist.

    109:20 Þetta séu laun andstæðinga minna frá Drottni og þeirra, er tala illt í gegn mér.

    109:21 En þú, Drottinn Guð, breyt við mig eftir gæsku miskunnar þinnar, frelsa mig sakir nafns þíns,

    109:22 því að ég er hrjáður og snauður, hjartað berst ákaft í brjósti mér.

    109:23 Ég hverf sem hallur skuggi, ég er hristur út eins og jarðvargar.

    109:24 Kné mín skjögra af föstu, og hold mitt tærist af viðsmjörsskorti.

    109:25 Ég er orðinn þeim að spotti, þegar þeir sjá mig, hrista þeir höfuðið.

    109:26 Veit mér lið, Drottinn, Guð minn, hjálpa mér eftir miskunn þinni,

    109:27 að þeir megi komast að raun um, að það var þín hönd, að það varst þú, Drottinn, sem gjörðir það.

    109:28 Bölvi þeir, þú munt blessa, verði þeir til skammar, er rísa gegn mér, en þjónn þinn gleðjist.

    109:29 Andstæðingar mínir íklæðist svívirðing, sveipi um sig skömminni eins og skikkju.

    109:30 Ég vil lofa Drottin mikillega með munni mínum, meðal fjölmennis vil ég vegsama hann,

    109:31 því að hann stendur hinum snauða til hægri handar til þess að hjálpa honum gegn þeim er sakfella hann.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine