Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 108

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    108:1 Ljóð. Davíðssálmur.

    108:2 Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, ég vil syngja og leika, vakna þú, sála mín!

    108:3 Vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

    108:4 Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

    108:5 því að miskunn þín er himnum hærri, og trúfesti þín nær til skýjanna.

    108:6 Sýn þig himnum hærri, ó Guð, og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina,

    108:7 til þess að ástvinir þínir megi frelsast. Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.

    108:8 Guð hefir sagt í helgidómi sínum: ,,Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal.

    108:9 Ég á Gíleað, ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.

    108:10 Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég.``

    108:11 Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?

    108:12 Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.

    108:13 Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.

    108:14 Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine