Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 107

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    107:1 Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

    107:2 Svo skulu hinir endurleystu Drottins segja, þeir er hann hefir leyst úr nauðum

    107:3 og safnað saman úr löndunum, frá austri og vestri, frá norðri og suðri.

    107:4 Þeir reikuðu um eyðimörkina, um veglaus öræfin, og fundu eigi byggilegar borgir,

    107:5 þá hungraði og þyrsti, sál þeirra vanmegnaðist í þeim.

    107:6 Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann bjargaði þeim úr angist þeirra

    107:7 og leiddi þá um slétta leið, svo að þeir komust til byggilegrar borgar.

    107:8 Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn,

    107:9 því að hann mettaði magnþrota sál og fyllti hungraða sál gæðum.

    107:10 Þeir sem sátu í myrkri og niðdimmu, bundnir eymd og járnum,

    107:11 af því að þeir höfðu þrjóskast við orðum Guðs og fyrirlitið ráð Hins hæsta,

    107:12 svo að hann beygði hug þeirra með mæðu, þeir hrösuðu, og enginn liðsinnti þeim.

    107:13 Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann frelsaði þá úr angist þeirra,

    107:14 hann leiddi þá út úr myrkrinu og niðdimmunni og braut sundur fjötra þeirra.

    107:15 Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn,

    107:16 því að hann braut eirhliðin og mölvaði járnslárnar.

    107:17 Heimskingjar, er vegna sinnar syndsamlegu breytni og vegna misgjörða sinna voru þjáðir,

    107:18 þeim bauð við hverri fæðu og voru komnir nálægt hliðum dauðans.

    107:19 Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann frelsaði þá úr angist þeirra,

    107:20 hann sendi út orð sitt og læknaði þá og bjargaði þeim frá gröfinni.

    107:21 Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn,

    107:22 og færa þakkarfórnir og kunngjöra verk hans með fögnuði.

    107:23 Þeir sem fóru um hafið á skipum, ráku verslun á hinum miklu vötnum,

    107:24 þeir hafa séð verk Drottins og dásemdir hans á djúpinu.

    107:25 Því að hann bauð og þá kom stormviðri, sem hóf upp bylgjur þess.

    107:26 Þeir hófust til himins, sigu niður í djúpið, þeim féllst hugur í neyðinni.

    107:27 Þeir römbuðu og skjögruðu eins og drukkinn maður, og öll kunnátta þeirra var þrotin.

    107:28 Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, og hann leiddi þá úr angist þeirra.

    107:29 Hann breytti stormviðrinu í blíðan blæ, svo að bylgjur hafsins urðu hljóðar.

    107:30 Þá glöddust þeir, af því að þær kyrrðust, og hann lét þá komast í höfn þá, er þeir þráðu.

    107:31 Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn,

    107:32 vegsama hann á þjóðarsamkomunni og lofa hann í hóp öldunganna.

    107:33 Hann gjörir fljótin að eyðimörk og uppsprettur að þurrum lendum,

    107:34 frjósamt land að saltsléttu sakir illsku íbúanna.

    107:35 Hann gjörir eyðimörkina að vatnstjörnum og þurrlendið að uppsprettum

    107:36 og lætur hungraða menn búa þar, að þeir megi grundvalla byggilega borg,

    107:37 sá akra og planta víngarða og afla afurða.

    107:38 Og hann blessar þá, svo að þeir margfaldast stórum og fénað þeirra lætur hann eigi fækka.

    107:39 Og þótt þeir fækki og hnígi niður sakir þrengingar af böli og harmi,

    107:40 þá hellir hann fyrirlitning yfir tignarmenn og lætur þá villast um veglaus öræfi,

    107:41 en bjargar aumingjanum úr eymdinni og gjörir ættirnar sem hjarðir.

    107:42 Hinir réttvísu sjá það og gleðjast, og öll illska lokar munni sínum.

    107:43 Hver sem er vitur, gefi gætur að þessu, og menn taki eftir náðarverkum Drottins.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine