Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 106

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    106:1 Halelúja! Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

    106:2 Hver getur sagt frá máttarverkum Drottins, kunngjört allan lofstír hans?

    106:3 Sælir eru þeir, sem gæta réttarins, sem iðka réttlæti alla tíma.

    106:4 Minnst þú mín, Drottinn, með velþóknun þeirri, er þú hefir á lýð þínum, vitja mín með hjálpræði þínu,

    106:5 að ég megi horfa með unun á hamingju þinna útvöldu, gleðjast yfir gleði þjóðar þinnar, fagna með eignarlýð þínum.

    106:6 Vér höfum syndgað ásamt feðrum vorum, höfum breytt illa og óguðlega.

    106:7 Feður vorir í Egyptalandi gáfu eigi gætur að dásemdarverkum þínum, minntust eigi þinnar miklu miskunnar og sýndu Hinum hæsta þrjósku hjá Hafinu rauða.

    106:8 Þó hjálpaði hann þeim sakir nafns síns til þess að kunngjöra mátt sinn.

    106:9 Hann hastaði á Hafið rauða, svo að það þornaði upp, og lét þá ganga um djúpin eins og um eyðimörk.

    106:10 Hann frelsaði þá af hendi hatursmanna þeirra og leysti þá af hendi óvinanna.

    106:11 Vötnin huldu fjendur þeirra, ekki einn af þeim komst undan.

    106:12 Þá trúðu þeir orðum hans, sungu honum lof.

    106:13 En þeir gleymdu fljótt verkum hans, treystu eigi á ráð hans.

    106:14 Þeir fylltust lysting í eyðimörkinni og freistuðu Guðs í öræfunum.

    106:15 Þá veitti hann þeim bæn þeirra og sendi þeim megurð.

    106:16 Þá öfunduðust þeir við Móse í herbúðunum, við Aron, hinn heilaga Drottins.

    106:17 Jörðin opnaðist og svalg Datan og huldi flokk Abírams,

    106:18 eldur kviknaði í flokki þeirra, loginn brenndi hina óguðlegu.

    106:19 Þeir bjuggu til kálf hjá Hóreb og lutu steyptu líkneski,

    106:20 og létu vegsemd sína í skiptum fyrir mynd af uxa, er gras etur.

    106:21 Þeir gleymdu Guði, frelsara sínum, þeim er stórvirki gjörði í Egyptalandi,

    106:22 dásemdarverk í landi Kams, óttaleg verk við Hafið rauða.

    106:23 Þá hugði hann á að tortíma þeim, ef Móse, hans útvaldi, hefði eigi gengið fram fyrir hann og borið af blakið, til þess að afstýra reiði hans, svo að hann skyldi eigi tortíma.

    106:24 Þeir fyrirlitu hið unaðslega land og trúðu eigi orðum hans.

    106:25 Þeir mögluðu í tjöldum sínum og hlýddu eigi á raust Drottins.

    106:26 Þá lyfti hann hendi sinni gegn þeim og sór að láta þá falla í eyðimörkinni,

    106:27 tvístra niðjum þeirra meðal þjóðanna og dreifa þeim um löndin.

    106:28 Þeir dýrkuðu Baal Peór og átu fórnir dauðra skurðgoða.

    106:29 Þeir egndu hann til reiði með athæfi sínu, og braust því út plága meðal þeirra.

    106:30 En Pínehas gekk fram og skar úr, og þá staðnaði plágan.

    106:31 Og honum var reiknað það til réttlætis, frá kyni til kyns, að eilífu.

    106:32 Þeir reittu hann til reiði hjá Meríba-vötnum, þá fór illa fyrir Móse þeirra vegna,

    106:33 því að þeir sýndu þrjósku anda hans, og honum hrutu ógætnisorð af vörum.

    106:34 Þeir eyddu eigi þjóðunum, er Drottinn hafði boðið þeim,

    106:35 heldur lögðu þeir lag sitt við heiðingjana og lærðu athæfi þeirra.

    106:36 Þeir dýrkuðu skurðgoð þeirra, og þau urðu þeim að snöru,

    106:37 þeir færðu að fórnum sonu sína og dætur sínar illum vættum

    106:38 og úthelltu saklausu blóði, blóði sona sinna og dætra, er þeir fórnfærðu skurðgoðum Kanaans, svo að landið vanhelgaðist af blóðskuldinni.

    106:39 Þeir saurguðust af verkum sínum og frömdu tryggðrof með athæfi sínu.

    106:40 Þá upptendraðist reiði Drottins gegn lýð hans, og hann fékk viðbjóð á arfleifð sinni.

    106:41 Hann gaf þá á vald heiðingjum, og hatursmenn þeirra drottnuðu yfir þeim.

    106:42 Óvinir þeirra þjökuðu þá, og þeir urðu að beygja sig undir vald þeirra.

    106:43 Mörgum sinnum bjargaði hann þeim, en þeir sýndu þrjósku í ráði sínu og urðu að lúta sakir misgjörðar sinnar.

    106:44 Samt leit hann á neyð þeirra, er hann heyrði kvein þeirra.

    106:45 Hann minntist sáttmála síns við þá og aumkaðist yfir þá sakir sinnar miklu miskunnar

    106:46 og lét þá finna miskunn hjá öllum þeim er höfðu haft þá burt hernumda.

    106:47 Hjálpa þú oss, Drottinn, Guð vor, og safna oss saman frá þjóðunum, að vér megum lofa þitt heilaga nafn, víðfrægja lofstír þinn.

    106:48 Lofaður sé Drottinn, Ísraels Guð, frá eilífð til eilífðar. Og allur lýðurinn segi: Amen! Halelúja.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine