Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 105

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    105:1 Þakkið Drottni, ákallið nafn hans, gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna!

    105:2 Syngið fyrir honum, leikið fyrir honum, talið um öll hans dásemdarverk.

    105:3 Hrósið yður af hans helga nafni, hjarta þeirra er leita Drottins gleðjist.

    105:4 Leitið Drottins og máttar hans, stundið sífellt eftir augliti hans.

    105:5 Minnist dásemdarverka hans, þeirra er hann gjörði, tákna hans og refsidóma munns hans,

    105:6 þér niðjar Abrahams, þjónar hans, þér synir Jakobs, hans útvöldu.

    105:7 Hann er Drottinn, vor Guð, um víða veröld ganga dómar hans.

    105:8 Hann minnist að eilífu sáttmála síns, orðs þess, er hann hefir gefið þúsundum kynslóða,

    105:9 sáttmálans, er hann gjörði við Abraham, og eiðs síns við Ísak,

    105:10 þess er hann setti sem lög fyrir Jakob, eilífan sáttmála fyrir Ísrael,

    105:11 þá er hann mælti: Þér mun ég gefa Kanaanland sem erfðahlut yðar.

    105:12 Þegar þeir voru fámennur hópur, örfáir og bjuggu þar útlendingar,

    105:13 þá fóru þeir frá einni þjóð til annarrar og frá einu konungsríki til annars lýðs.

    105:14 Hann leið engum að kúga þá og hegndi konungum þeirra vegna.

    105:15 ,,Snertið eigi við mínum smurðu og gjörið eigi spámönnum mínum mein.``

    105:16 Þá er hann kallaði hallæri yfir landið, braut í sundur hverja stoð brauðsins,

    105:17 þá sendi hann mann á undan þeim, Jósef var seldur sem þræll.

    105:18 Þeir þjáðu fætur hans með fjötrum, hann var lagður í járn,

    105:19 allt þar til er orð hans rættust, og orð Drottins létu hann standast raunina.

    105:20 Konungur sendi boð og lét hann lausan, drottnari þjóðanna leysti fjötra hans.

    105:21 Hann gjörði hann að herra yfir húsi sínu og að drottnara yfir öllum eigum sínum,

    105:22 að hann gæti fjötrað höfðingja eftir vild og kennt öldungum hans speki.

    105:23 Síðan kom Ísrael til Egyptalands, Jakob var gestur í landi Kams.

    105:24 Og Guð gjörði lýð sinn mjög mannmargan og lét þá verða fleiri en fjendur þeirra.

    105:25 Hann sneri hjörtum Egypta til haturs við lýð sinn, til lævísi við þjóna sína.

    105:26 Hann sendi Móse, þjón sinn, og Aron, er hann hafði útvalið,

    105:27 hann gjörði tákn sín á þeim og undur í landi Kams.

    105:28 Hann sendi sorta og myrkvaði landið, en þeir gáfu orðum hans engan gaum,

    105:29 hann breytti vötnum þeirra í blóð og lét fiska þeirra deyja,

    105:30 land þeirra varð kvikt af froskum, alla leið inn í svefnherbergi konungs,

    105:31 hann bauð, þá komu flugur, mývargur um öll héruð þeirra,

    105:32 hann gaf þeim hagl fyrir regn, bálandi eld í land þeirra,

    105:33 hann laust vínvið þeirra og fíkjutré og braut sundur trén í héruðum þeirra,

    105:34 hann bauð, þá kom jarðvargur og óteljandi engisprettur,

    105:35 sem átu upp allar jurtir í landi þeirra og átu upp ávöxtinn af jörð þeirra,

    105:36 hann laust alla frumburði í landi þeirra, frumgróða alls styrkleiks þeirra.

    105:37 Síðan leiddi hann þá út með silfri og gulli, enginn hrasaði af kynkvíslum hans.

    105:38 Egyptaland gladdist yfir burtför þeirra, því að ótti við þá var fallinn yfir þá.

    105:39 Hann breiddi út ský sem hlíf og eld til þess að lýsa um nætur.

    105:40 Þeir báðu, þá lét hann lynghæns koma og mettaði þá með himnabrauði.

    105:41 Hann opnaði klett, svo að vatn vall upp, rann sem fljót um eyðimörkina.

    105:42 Hann minntist síns heilaga heits við Abraham þjón sinn

    105:43 og leiddi lýð sinn út með gleði, sína útvöldu með fögnuði.

    105:44 Og hann gaf þeim lönd þjóðanna, það sem þjóðirnar höfðu aflað með striti, fengu þeir til eignar,

    105:45 til þess að þeir skyldu halda lög hans og varðveita lögmál hans. Halelúja.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine