Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 104

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    104:1 Lofa þú Drottin, sála mín! Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill. Þú ert klæddur hátign og vegsemd.

    104:2 Þú hylur þig ljósi eins og skikkju, þenur himininn út eins og tjalddúk.

    104:3 Þú hvelfir hásal þinn í vötnunum, gjörir ský að vagni þínum, og ferð um á vængjum vindarins.

    104:4 Þú gjörir vindana að sendiboðum þínum, bálandi eld að þjónum þínum.

    104:5 Þú grundvallar jörðina á undirstöðum hennar, svo að hún haggast eigi um aldur og ævi.

    104:6 Hafflóðið huldi hana sem klæði, vötnin náðu upp yfir fjöllin,

    104:7 en fyrir þinni ógnun flýðu þau, fyrir þrumurödd þinni hörfuðu þau undan með skelfingu.

    104:8 Þau gengu yfir fjöllin, steyptust niður í dalina, þangað sem þú hafðir búið þeim stað.

    104:9 Þú settir takmörk, sem þau mega ekki fara yfir, þau skulu ekki hylja jörðina framar.

    104:10 Þú sendir lindir í dalina, þær renna milli fjallanna,

    104:11 þær svala öllum dýrum merkurinnar, villiasnarnir slökkva þorsta sinn.

    104:12 Yfir þeim byggja fuglar himins, láta kvak sitt heyrast milli greinanna.

    104:13 Þú vökvar fjöllin frá hásal þínum, jörðin mettast af ávexti verka þinna.

    104:14 Þú lætur gras spretta handa fénaðinum og jurtir, sem maðurinn ræktar, til þess að framleiða brauð af jörðinni

    104:15 og vín, sem gleður hjarta mannsins, olíu, sem gjörir andlitið gljáandi, og brauð, sem hressir hjarta mannsins.

    104:16 Tré Drottins mettast, sedrustrén á Líbanon, er hann hefir gróðursett

    104:17 þar sem fuglarnir byggja hreiður, storkarnir, er hafa kýprestrén að húsi.

    104:18 Hin háu fjöll eru handa steingeitunum, klettarnir eru hæli fyrir stökkhérana.

    104:19 Þú gjörðir tunglið til þess að ákvarða tíðirnar, sólin veit, hvar hún á að ganga til viðar.

    104:20 Þegar þú gjörir myrkur, verður nótt, og þá fara öll skógardýrin á kreik.

    104:21 Ljónin öskra eftir bráð og heimta æti sitt af Guði.

    104:22 Þegar sól rennur upp, draga þau sig í hlé og leggjast fyrir í fylgsnum sínum,

    104:23 en þá fer maðurinn út til starfa sinna, til vinnu sinnar fram á kveld.

    104:24 Hversu mörg eru verk þín, Drottinn, þú gjörðir þau öll með speki, jörðin er full af því, er þú hefir skapað.

    104:25 Þar er hafið, mikið og vítt á alla vegu, þar er óteljandi grúi, smá dýr og stór.

    104:26 Þar fara skipin um og Levjatan, er þú hefir skapað til þess að leika sér þar.

    104:27 Öll vona þau á þig, að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma.

    104:28 Þú gefur þeim, og þau tína, þú lýkur upp hendi þinni, og þau mettast gæðum.

    104:29 Þú byrgir auglit þitt, þá skelfast þau, þú tekur aftur anda þeirra, þá andast þau og hverfa aftur til moldarinnar.

    104:30 Þú sendir út anda þinn, þá verða þau til, og þú endurnýjar ásjónu jarðar.

    104:31 Dýrð Drottins vari að eilífu, Drottinn gleðjist yfir verkum sínum,

    104:32 hann sem lítur til jarðar, svo að hún nötrar, sem snertir við fjöllunum, svo að úr þeim rýkur.

    104:33 Ég vil ljóða um Drottin meðan lifi, lofsyngja Guði mínum meðan ég er til.

    104:34 Ó að mál mitt mætti falla honum í geð! Ég gleðst yfir Drottni.

    104:35 Ó að syndarar mættu hverfa af jörðunni og óguðlegir eigi vera til framar. Vegsama þú Drottin, sála mín. Halelúja.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine