Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 103

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    103:1 Davíðssálmur. Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn,

    103:2 lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans.

    103:3 Hann fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein,

    103:4 leysir líf þitt frá gröfinni, krýnir þig náð og miskunn.

    103:5 Hann mettar þig gæðum, þú yngist upp sem örninn.

    103:6 Drottinn fremur réttlæti og veitir rétt öllum kúguðum.

    103:7 Hann gjörði Móse vegu sína kunna og Ísraelsbörnum stórvirki sín.

    103:8 Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur.

    103:9 Hann þreytir eigi deilur um aldur og er eigi eilíflega reiður.

    103:10 Hann hefir eigi breytt við oss eftir syndum vorum og eigi goldið oss eftir misgjörðum vorum,

    103:11 heldur svo hár sem himinninn er yfir jörðunni, svo voldug er miskunn hans við þá er óttast hann.

    103:12 Svo langt sem austrið er frá vestrinu, svo langt hefir hann fjarlægt afbrot vor frá oss.

    103:13 Eins og faðir sýnir miskunn börnum sínum, eins hefir Drottinn sýnt miskunn þeim er óttast hann.

    103:14 Því að hann þekkir eðli vort, minnist þess að vér erum mold.

    103:15 Dagar mannsins eru sem grasið, hann blómgast sem blómið á mörkinni,

    103:16 þegar vindur blæs á hann er hann horfinn, og staður hans þekkir hann ekki framar.

    103:17 En miskunn Drottins við þá er óttast hann varir frá eilífð til eilífðar, og réttlæti hans nær til barnabarnanna,

    103:18 þeirra er varðveita sáttmála hans og muna að breyta eftir boðum hans.

    103:19 Drottinn hefir reist hásæti sitt á himnum, og konungdómur hans drottnar yfir alheimi.

    103:20 Lofið Drottin, þér englar hans, þér voldugu hetjur, er framkvæmið boð hans, er þér heyrið hljóminn af orði hans.

    103:21 Lofið Drottin, allar hersveitir hans, þjónar hans, er framkvæmið vilja hans.

    103:22 Lofið Drottin, öll verk hans, á hverjum stað í ríki hans. Lofa þú Drottin, sála mín.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine