Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 135

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    135:1 Halelúja. Lofið nafn Drottins, lofið hann, þér þjónar Drottins,

    135:2 er standið í húsi Drottins, í forgörðum húss Guðs vors.

    135:3 Lofið Drottin, því að Drottinn er góður, leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt.

    135:4 Því að Drottinn hefir útvalið sér Jakob, gert Ísrael að eign sinni.

    135:5 Já, ég veit, að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri.

    135:6 Allt, sem Drottni þóknast, það gjörir hann, á himni og jörðu, í hafinu og öllum djúpunum.

    135:7 Hann lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar, gjörir eldingarnar til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans.

    135:8 Hann laust frumburði Egyptalands, bæði menn og skepnur,

    135:9 sendi tákn og undur yfir Egyptaland, gegn Faraó og öllum þjónum hans.

    135:10 Hann laust margar þjóðir og deyddi volduga konunga:

    135:11 Síhon, Amorítakonung, og Óg, konung í Basan, og öll konungsríki í Kanaan,

    135:12 og gaf lönd þeirra að erfð, að erfð Ísrael, lýð sínum.

    135:13 Drottinn, nafn þitt varir að eilífu, minning þín, Drottinn, frá kyni til kyns,

    135:14 því að Drottinn réttir hlut þjóðar sinnar og aumkast yfir þjóna sína.

    135:15 Skurðgoð þjóðanna eru silfur og gull, handaverk manna.

    135:16 Þau hafa munn, en tala ekki, augu, en sjá ekki,

    135:17 þau hafa eyru, en heyra ekki, og eigi er heldur neinn andardráttur í munni þeirra.

    135:18 Eins og þau eru, verða smiðir þeirra, allir þeir, er á þau treysta.

    135:19 Ísraels ætt, lofið Drottin, Arons ætt, lofið Drottin!

    135:20 Leví ætt, lofið Drottin, þér sem óttist Drottin, lofið hann!

    135:21 Lofaður sé Drottinn frá Síon, hann sem býr í Jerúsalem! Halelúja.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine