Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 136

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    136:1 Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

    136:2 Þakkið Guði guðanna, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:3 þakkið Drottni drottnanna, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:4 honum, sem einn gjörir mikil dásemdarverk, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:5 honum, sem skapaði himininn með speki, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:6 honum, sem breiddi jörðina út á vötnunum, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:7 honum, sem skapaði stóru ljósin, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:8 sólina til þess að ráða deginum, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:9 tunglið og stjörnurnar til þess að ráða nóttunni, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:10 honum, sem laust Egypta með deyðing frumburðanna, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:11 og leiddi Ísrael burt frá þeim, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:12 með sterkri hendi og útréttum armlegg, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:13 honum, sem skipti Rauðahafinu sundur, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:14 og lét Ísrael ganga gegnum það, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:15 og keyrði Faraó og her hans út í Rauðahafið, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:16 honum, sem leiddi lýð sinn gegnum eyðimörkina, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:17 honum, sem laust mikla konunga, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:18 og deyddi volduga konunga, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:19 Síhon Amorítakonung, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:20 og Óg konung í Basan, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:21 og gaf land þeirra að erfð, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:22 að erfð Ísrael þjóni sínum, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:23 honum, sem minntist vor í læging vorri, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:24 og frelsaði oss frá fjandmönnum vorum, því að miskunn hans varir að eilífu,

    136:25 sem gefur fæðu öllu holdi, því að miskunn hans varir að eilífu.

    136:26 Þakkið Guði himnanna, því að miskunn hans varir að eilífu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine