Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 20

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    20:1 Til söngstjórans. Davíðssálmur.

    20:2 Drottinn bænheyri þig á degi neyðarinnar, nafn Jakobs Guðs bjargi þér.

    20:3 Hann sendi þér hjálp frá helgidóminum, styðji þig frá Síon.

    20:4 Hann minnist allra fórnargjafa þinna og taki brennifórn þína gilda. [Sela]

    20:5 Hann veiti þér það er hjarta þitt þráir, og veiti framgang öllum áformum þínum.

    20:6 Ó að vér mættum fagna yfir sigri þínum og veifa fánanum í nafni Guðs vors. Drottinn uppfylli allar óskir þínar.

    20:7 Nú veit ég, að Drottinn veitir hjálp sínum smurða, svarar honum frá sínum helga himni, í máttarverkum kemur fulltingi hægri handar hans fram.

    20:8 Hinir stæra sig af vögnum sínum og stríðshestum, en vér af nafni Drottins, Guðs vors.

    20:9 Þeir fá knésig og falla, en vér rísum og stöndum uppréttir.

    20:10 Drottinn! Hjálpa konunginum og bænheyr oss, er vér hrópum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine