Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 21

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    21:1 Til söngstjórans. Davíðssálmur.

    21:2 Drottinn, yfir veldi þínu fagnar konungurinn, hve mjög kætist hann yfir hjálp þinni!

    21:3 Þú hefir gefið honum það er hjarta hans þráði, um það sem varir hans báðu, neitaðir þú honum eigi. [Sela]

    21:4 Því að þú kemur í móti honum með hamingjublessunum, setur gullna kórónu á höfuð honum.

    21:5 Um líf bað hann þig, það veittir þú honum, fjöld lífdaga um aldur og ævi.

    21:6 Mikil er sæmd hans fyrir þína hjálp, vegsemd og heiður veittir þú honum.

    21:7 Já, þú hefir veitt honum blessun að eilífu, þú gleður hann með fögnuði fyrir augliti þínu.

    21:8 Því að konungurinn treystir Drottni, og vegna elsku Hins hæsta bifast hann eigi.

    21:9 Hönd þín nær til allra óvina þinna, hægri hönd þín nær til allra hatursmanna þinna.

    21:10 Þú gjörir þá sem glóandi ofn, er þú lítur á þá. Drottinn tortímir þeim í reiði sinni, og eldurinn eyðir þeim.

    21:11 Ávöxtu þeirra afmáir þú af jörðunni og afkvæmi þeirra úr mannheimi,

    21:12 því að þeir hafa stofnað ill ráð í gegn þér, búið fánýtar vélar.

    21:13 Því að þú rekur þá á flótta, miðar á andlit þeirra með boga þínum.

    21:14 Hef þig, Drottinn, í veldi þínu! Vér viljum syngja og kveða um máttarverk þín!

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine