Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 22

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    22:1 Til söngstjórans. Lag: Hind morgunroðans. Davíðssálmur.

    22:2 Guð minn, Guð minn, hví hefir þú yfirgefið mig? Ég hrópa, en hjálp mín er fjarlæg.

    22:3 ,,Guð minn!`` hrópa ég um daga, en þú svarar ekki, og um nætur, en ég finn enga fró.

    22:4 Og samt ert þú Hinn heilagi, sá er ríkir uppi yfir lofsöngvum Ísraels.

    22:5 Þér treystu feður vorir, þeir treystu þér, og þú hjálpaðir þeim,

    22:6 til þín hrópuðu þeir, og þeim var bjargað, þér treystu þeir og urðu ekki til skammar.

    22:7 En ég er maðkur og eigi maður, til spotts fyrir menn og fyrirlitinn af lýðnum.

    22:8 Allir þeir er sjá mig gjöra gys að mér, bregða grönum og hrista höfuðið.

    22:9 ,,Hann fól málefni sitt Drottni. Hann hjálpi honum! hann frelsi hann, því að hann hefir þóknun á honum!``

    22:10 Já, þú leiddir mig fram af móðurlífi, lést mig liggja öruggan við brjóst móður minnar.

    22:11 Til þín var mér varpað frá móðurskauti, frá móðurlífi ert þú Guð minn.

    22:12 Ver eigi fjarri mér, því að neyðin er nærri, og enginn hjálpar.

    22:13 Sterk naut umkringja mig, Basans uxar slá hring um mig.

    22:14 Þeir glenna upp ginið í móti mér sem bráðsólgið, öskrandi ljón.

    22:15 Mér er hellt út sem vatni, og öll bein mín eru gliðnuð sundur; hjarta mitt er sem vax, bráðnað sundur í brjósti mér;

    22:16 gómur minn er þurr sem brenndur leir, og tungan loðir föst í munni mér. Og í duft dauðans leggur þú mig.

    22:17 Því að hundar umkringja mig, hópur illvirkja slær hring um mig, hendur mínar og fætur hafa þeir gegnumstungið.

    22:18 Ég get talið öll mín bein _ þeir horfa á og hafa mig að augnagamni,

    22:19 þeir skipta með sér klæðum mínum og kasta hlut um kyrtil minn.

    22:20 En þú, ó Drottinn, ver eigi fjarri! þú styrkur minn, skunda mér til hjálpar,

    22:21 frelsa líf mitt undan sverðinu og sál mína undan hundunum.

    22:22 Frelsa mig úr gini ljónsins, frá hornum vísundarins. Þú hefir bænheyrt mig!

    22:23 Ég vil kunngjöra bræðrum mínum nafn þitt, í söfnuðinum vil ég lofa þig!

    22:24 Þér sem óttist Drottin, lofið hann! Tignið hann, allir niðjar Jakobs! Dýrkið hann, allir niðjar Ísraels!

    22:25 Því að hann hefir eigi fyrirlitið né virt að vettugi neyð hins hrjáða og eigi hulið auglit sitt fyrir honum, heldur heyrt, er hann hrópaði til hans.

    22:26 Frá þér kemur lofsöngur minn í stórum söfnuði, heit mín vil ég efna frammi fyrir þeim er óttast hann.

    22:27 Snauðir munu eta og verða mettir, þeir er leita Drottins munu lofa hann. Hjörtu yðar lifni við að eilífu.

    22:28 Endimörk jarðar munu minnast þess og hverfa aftur til Drottins og allar ættir þjóðanna falla fram fyrir augliti hans.

    22:29 Því að ríkið heyrir Drottni, og hann er drottnari yfir þjóðunum.

    22:30 Já, fyrir honum munu öll stórmenni jarðar falla fram, fyrir honum munu beygja sig allir þeir er hníga í duftið. En ég vil lifa honum,

    22:31 niðjar mínir munu þjóna honum. Komandi kynslóðum mun sagt verða frá Drottni,

    22:32 og lýð sem enn er ófæddur mun boðað réttlæti hans, að hann hefir framkvæmt það.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine