Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 25

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    25:1 Davíðssálmur.

    25:2 Til þín, Drottinn, hef ég sál mína, Guð minn, þér treysti ég. Lát mig eigi verða til skammar, lát eigi óvini mína hlakka yfir mér.

    25:3 Hver sá er á þig vonar, mun eigi heldur verða til skammar, þeir verða til skammar, er ótrúir eru að raunalausu.

    25:4 Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína.

    25:5 Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér, því að þú ert Guð hjálpræðis míns, allan daginn vona ég á þig.

    25:6 Minnst þú miskunnar þinnar, Drottinn, og kærleiksverka, því að þau eru frá eilífð.

    25:7 Minnst eigi æskusynda minna og afbrota, minnst mín eftir elsku þinni sakir gæsku þinnar, Drottinn.

    25:8 Góður og réttlátur er Drottinn, þess vegna vísar hann syndurum veginn.

    25:9 Hann lætur hina hrjáðu ganga eftir réttlætinu og kennir hinum þjökuðu veg sinn.

    25:10 Allir vegir Drottins eru elska og trúfesti fyrir þá er gæta sáttmála hans og vitnisburða.

    25:11 Sakir nafns þíns, Drottinn, fyrirgef mér sekt mína, því að hún er mikil.

    25:12 Ef einhver óttast Drottin, mun hann kenna honum veg þann er hann á að velja.

    25:13 Sjálfur mun hann búa við hamingju, og niðjar hans eignast landið.

    25:14 Drottinn sýnir trúnað þeim er óttast hann, og sáttmála sinn gjörir hann þeim kunnan.

    25:15 Augu mín mæna ætíð til Drottins, því að hann greiðir fót minn úr snörunni.

    25:16 Snú þér til mín og líkna mér, því að ég er einmana og hrjáður.

    25:17 Angist sturlar hjarta mitt, leið mig úr nauðum mínum.

    25:18 Lít á eymd mína og armæðu og fyrirgef allar syndir mínar.

    25:19 Lít á, hversu margir óvinir mínir eru, með rangsleitnishatri hata þeir mig.

    25:20 Varðveit líf mitt og frelsa mig, lát mig eigi verða til skammar, því að hjá þér leita ég hælis.

    25:21 Lát ráðvendni og hreinskilni gæta mín, því að á þig vona ég.

    25:22 Frelsa Ísrael, ó Guð, úr öllum nauðum hans.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine