Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 26

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    26:1 Davíðssálmur. Lát mig ná rétti mínum, Drottinn, því að ég geng fram í grandvarleik og þér treysti ég óbifanlega.

    26:2 Rannsaka mig, Drottinn, og reyn mig, prófa hug minn og hjarta.

    26:3 Því að ég hefi elsku þína fyrir augum, og ég geng í sannleika þínum.

    26:4 Ég tek mér eigi sæti hjá lygurum og hefi eigi umgengni við fláráða menn.

    26:5 Ég hata söfnuð illvirkjanna, sit eigi meðal óguðlegra.

    26:6 Ég þvæ hendur mínar í sakleysi og geng í kringum altari þitt, Drottinn,

    26:7 til þess að láta lofsönginn hljóma og segja frá öllum þínum dásemdarverkum.

    26:8 Drottinn, ég elska bústað húss þíns og staðinn þar sem dýrð þín býr.

    26:9 Hríf eigi sál mína burt með syndurum né líf mitt með morðingjum,

    26:10 þeim er hafa svívirðing í höndum sér og hægri höndina fulla af mútugjöfum.

    26:11 En ég geng fram í grandvarleik, frelsa mig og líkna mér.

    26:12 Fótur minn stendur á sléttri grund, í söfnuðunum vil ég lofa Drottin.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine