Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 33

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    33:1 Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni! Hreinlyndum hæfir lofsöngur.

    33:2 Lofið Drottin með gígjum, leikið fyrir honum á tístrengjaða hörpu.

    33:3 Syngið honum nýjan söng, knýið strengina ákaft með fagnaðarópi.

    33:4 Því að orð Drottins er áreiðanlegt, og öll verk hans eru í trúfesti gjörð.

    33:5 Hann hefir mætur á réttlæti og rétti, jörðin er full af miskunn Drottins.

    33:6 Fyrir orð Drottins voru himnarnir gjörðir og öll þeirra prýði fyrir anda munns hans.

    33:7 Hann safnaði vatni hafsins sem í belg, lét straumana í forðabúr.

    33:8 Öll jörðin óttist Drottin, allir heimsbúar hræðist hann,

    33:9 því að hann talaði _ og það varð, hann bauð _ þá stóð það þar.

    33:10 Drottinn ónýtir ráð þjóðanna, gjörir að engu áform lýðanna,

    33:11 en ráð Drottins stendur stöðugt um aldur, áform hjarta hans frá kyni til kyns.

    33:12 Sæl er sú þjóð er á Drottin að Guði, sá lýður er hann hefir kjörið sér til eignar.

    33:13 Drottinn lítur niður af himni, sér öll mannanna börn,

    33:14 frá bústað sínum virðir hann fyrir sér alla jarðarbúa,

    33:15 hann sem myndað hefir hjörtu þeirra allra og gefur gætur að öllum athöfnum þeirra.

    33:16 Eigi sigrar konungurinn fyrir gnótt herafla síns, eigi bjargast kappinn fyrir ofurafl sitt.

    33:17 Svikull er víghestur til sigurs, með ofurafli sínu bjargar hann ekki.

    33:18 En augu Drottins hvíla á þeim er óttast hann, á þeim er vona á miskunn hans.

    33:19 Hann frelsar þá frá dauða og heldur lífinu í þeim í hallæri.

    33:20 Sálir vorar vona á Drottin, hann er hjálp vor og skjöldur.

    33:21 Já, yfir honum fagnar hjarta vort, hans heilaga nafni treystum vér.

    33:22 Miskunn þín, Drottinn, sé yfir oss, svo sem vér vonum á þig.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine