Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 34

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    34:1 Sálmur Davíðs, þá er hann gjörði sér upp vitfirringu frammi fyrir Abímelek, svo að Abímelek rak hann í burt, og hann fór burt.

    34:2 Ég vil vegsama Drottin alla tíma, ætíð sé lof hans mér í munni.

    34:3 Sál mín hrósar sér af Drottni, hinir hógværu skulu heyra það og fagna.

    34:4 Miklið Drottin ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans.

    34:5 Ég leitaði Drottins, og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því er ég hræddist.

    34:6 Lítið til hans og gleðjist, og andlit yðar skulu eigi blygðast.

    34:7 Hér er volaður maður sem hrópaði, og Drottinn heyrði hann og hjálpaði honum úr öllum nauðum hans.

    34:8 Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann, og frelsar þá.

    34:9 Finnið og sjáið, að Drottinn er góður, sæll er sá maður er leitar hælis hjá honum.

    34:10 Óttist Drottin, þér hans heilögu, því að þeir er óttast hann líða engan skort.

    34:11 Ung ljón eiga við skort að búa og svelta, en þeir er leita Drottins fara einskis góðs á mis.

    34:12 Komið, börn, hlýðið á mig, ég vil kenna yður ótta Drottins.

    34:13 Ef einhver óskar lífs, þráir lífdaga til þess að njóta hamingjunnar,

    34:14 þá varðveit tungu þína frá illu og varir þínar frá svikatali,

    34:15 forðast illt og gjörðu gott, leita friðar og legg stund á hann.

    34:16 Augu Drottins hvíla á réttlátum, og eyru hans gefa gaum að hrópi þeirra.

    34:17 Auglit Drottins horfir á þá er illa breyta, til þess að afmá minningu þeirra af jörðunni.

    34:18 Ef réttlátir hrópa, þá heyrir Drottinn, úr öllum nauðum þeirra frelsar hann þá.

    34:19 Drottinn er nálægur þeim er hafa sundurmarið hjarta, þeim er hafa sundurkraminn anda, hjálpar hann.

    34:20 Margar eru raunir réttláts manns, en Drottinn frelsar hann úr þeim öllum.

    34:21 Hann gætir allra beina hans, ekki eitt af þeim skal brotið.

    34:22 Ógæfa drepur óguðlegan mann, þeir er hata hinn réttláta, skulu sekir dæmdir.

    34:23 Drottinn frelsar líf þjóna sinna, enginn sá er leitar hælis hjá honum, mun sekur dæmdur.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine