Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 35

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    35:1 Davíðssálmur. Deil þú, Drottinn, við þá er deila við mig, berst þú við þá er berjast við mig.

    35:2 Tak skjöld og törgu og rís upp mér til hjálpar.

    35:3 Tak til spjót og öxi til þess að mæta ofsækjendum mínum, seg við sál mína: ,,Ég er hjálp þín!``

    35:4 Lát þá er sitja um líf mitt hljóta smán og svívirðing, lát þá hverfa aftur með skömm, er ætla að gjöra mér illt.

    35:5 Lát þá verða sem sáðir fyrir vindi, þegar engill Drottins varpar þeim um koll.

    35:6 Lát veg þeirra verða myrkan og hálan, þegar engill Drottins eltir þá.

    35:7 Því að ástæðulausu hafa þeir lagt net sitt leynt fyrir mig, að ástæðulausu hafa þeir grafið gryfju fyrir mig.

    35:8 Lát tortíming koma yfir þá, er þá varir minnst, lát netið, er þeir hafa lagt leynt, veiða sjálfa þá, lát þá falla í þeirra eigin gryfju.

    35:9 En sál mín skal kætast yfir Drottni, gleðjast yfir hjálpræði hans.

    35:10 Öll bein mín skulu segja: ,,Drottinn, hver er sem þú, er frelsar hinn umkomulausa frá þeim sem er honum yfirsterkari, hinn hrjáða og snauða frá þeim sem rænir hann?``

    35:11 Ljúgvottar rísa upp, þeir spyrja mig um það sem ég veit ekki um.

    35:12 Þeir launa mér gott með illu, einsemd varð hlutfall mitt.

    35:13 En þegar þeir voru sjúkir, klæddist ég hærusekk, þjáði mig með föstu og bað með niðurlútu höfði,

    35:14 gekk um harmandi, sem vinur eða bróðir ætti í hlut, var beygður eins og sá er syrgir móður sína.

    35:15 En þeir fagna yfir hrösun minni og safnast saman, útlendingar og ókunnugir menn safnast saman móti mér, mæla lastyrði og þagna eigi.

    35:16 Þeir freista mín, smána og smána, nísta tönnum í gegn mér.

    35:17 Drottinn, hversu lengi vilt þú horfa á? Frelsa sál mína undan eyðileggingu þeirra, mína einmana sál undan ljónunum.

    35:18 Þá vil ég lofa þig í miklum söfnuði, vegsama þig í miklum mannfjölda.

    35:19 Lát eigi þá sem án saka eru óvinir mínir, hlakka yfir mér, lát eigi þá sem að ástæðulausu hata mig, skotra augunum.

    35:20 Því að frið tala þeir eigi, og móti hinum kyrrlátu í landinu hugsa þeir upp sviksamleg orð.

    35:21 Þeir glenna upp ginið í móti mér, segja: ,,Hæ, hæ! Nú höfum vér séð það með eigin augum!``

    35:22 Þú hefir séð það, Drottinn, ver eigi hljóður, Drottinn, ver eigi langt í burtu frá mér.

    35:23 Vakna, rís upp og lát mig ná rétti mínum, Guð minn og Drottinn, til þess að flytja mál mitt.

    35:24 Dæm mig eftir réttlæti þínu, Drottinn, Guð minn, og lát þá eigi hlakka yfir mér,

    35:25 lát þá ekki segja í hjarta sínu: ,,Hæ! Ósk vor er uppfyllt!`` lát þá ekki segja: ,,Vér höfum gjört út af við hann.``

    35:26 Lát þá alla verða til skammar og hljóta kinnroða, er hlakka yfir ógæfu minni, lát þá íklæðast skömm og svívirðing, er hreykja sér upp gegn mér.

    35:27 Lát þá kveða fagnaðarópi og gleðjast, er unna mér réttar, lát þá ætíð segja: ,,Vegsamaður sé Drottinn, hann sem ann þjóni sínum heilla!``

    35:28 Og tunga mín skal boða réttlæti þitt, lofstír þinn liðlangan daginn.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine