Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 36

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    36:1 Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins.

    36:2 Rödd syndarinnar talar til hins guðlausa í fylgsnum hjarta hans, enginn guðsótti býr í huga hans.

    36:3 Hún smjaðrar fyrir honum í augum hans og misgjörð hans verður uppvís og hann verður fyrir hatri.

    36:4 Orðin af munni hans eru tál og svik, hann er hættur að vera hygginn og breyta vel.

    36:5 Í hvílu sinni hyggur hann á tál, hann fetar vonda vegu, forðast eigi hið illa.

    36:6 Drottinn, til himna nær miskunn þín, til skýjanna trúfesti þín.

    36:7 Réttlæti þitt er sem fjöll Guðs, dómar þínir sem reginhaf. Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn.

    36:8 Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.

    36:9 Þau seðjast af feiti húss þíns, og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna.

    36:10 Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós.

    36:11 Lát miskunn þína haldast við þá er þekkja þig, og réttlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru.

    36:12 Lát eigi fót hins hrokafulla troða á mér né hönd óguðlegra hrekja mig burt.

    36:13 Þar eru illgjörðamennirnir fallnir, þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine