Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 37

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    37:1 Davíðssálmur. Ver eigi of bráður vegna illvirkjanna, öfunda eigi þá er ranglæti fremja,

    37:2 því að þeir fölna skjótt sem grasið, visna sem grænar jurtir.

    37:3 Treyst Drottni og gjör gott, bú þú í landinu og iðka ráðvendni,

    37:4 þá munt þú gleðjast yfir Drottni, og hann mun veita þér það sem hjarta þitt girnist.

    37:5 Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.

    37:6 Hann mun láta réttlæti þitt renna upp sem ljós og rétt þinn sem hábjartan dag.

    37:7 Ver hljóður fyrir Drottni og vona á hann. Ver eigi of bráður vegna þeirra er vel gengur, vegna þess manns er svik fremur.

    37:8 Lát af reiði og slepp heiftinni, ver eigi of bráður, það leiðir til ills eins.

    37:9 Illvirkjarnir verða afmáðir, en þeir er vona á Drottin, fá landið til eignar.

    37:10 Innan stundar eru engir guðlausir til framar, þegar þú gefur gætur að stað þeirra, eru þeir horfnir.

    37:11 En hinir hógværu fá landið til eignar, gleðjast yfir ríkulegri gæfu.

    37:12 Óguðlegur maður býr yfir illu gegn réttlátum, nístir tönnum gegn honum.

    37:13 Drottinn hlær að honum, því að hann sér að dagur hans kemur.

    37:14 Óguðlegir bregða sverðinu og benda boga sína til þess að fella hinn hrjáða og snauða, til þess að brytja niður hina ráðvöndu.

    37:15 En sverð þeirra lendir í þeirra eigin hjörtum, og bogar þeirra munu brotnir verða.

    37:16 Betri er lítil eign réttláts manns en auðlegð margra illgjarnra,

    37:17 því að armleggur illgjarnra verður brotinn, en réttláta styður Drottinn.

    37:18 Drottinn þekkir daga ráðvandra, og arfleifð þeirra varir að eilífu.

    37:19 Á vondum tímum verða þeir eigi til skammar, á hallæristímum hljóta þeir saðning.

    37:20 En óguðlegir farast, og óvinir Drottins eru sem skraut vallarins: þeir hverfa _ sem reykur hverfa þeir.

    37:21 Guðlaus maður tekur lán og borgar eigi, en hinn réttláti er mildur og örlátur.

    37:22 Því að þeir sem Drottinn blessar, fá landið til eignar, en hinum bannfærðu verður útrýmt.

    37:23 Frá Drottni kemur skrefum mannsins festa, þegar hann hefir þóknun á breytni hans.

    37:24 Þótt hann falli, þá liggur hann ekki flatur, því að Drottinn heldur í hönd hans.

    37:25 Ungur var ég og gamall er ég orðinn, en aldrei sá ég réttlátan mann yfirgefinn né niðja hans biðja sér matar.

    37:26 Ætíð er hann mildur og lánar, og niðjar hans verða öðrum til blessunar.

    37:27 Forðastu illt og gjörðu gott, þá munt þú búa kyrr um aldur,

    37:28 því að Drottinn hefir mætur á réttlæti og yfirgefur ekki sína trúuðu. Þeir verða eilíflega varðveittir, en niðjar óguðlegra upprætast.

    37:29 Hinir réttlátu fá landið til eignar og búa í því um aldur.

    37:30 Munnur réttláts manns mælir speki og tunga hans talar það sem rétt er.

    37:31 Lögmál Guðs hans er í hjarta hans, eigi skriðnar honum fótur.

    37:32 Hinn guðlausi skimar eftir hinum réttláta og situr um að drepa hann,

    37:33 en Drottinn ofurselur hann honum ekki og lætur hann ekki ganga sekan frá dómi.

    37:34 Vona á Drottin og gef gætur að vegi hans, þá mun hann hefja þig upp, að þú erfir landið, og þú skalt horfa á, þegar illvirkjum verður útrýmt.

    37:35 Ég sá hinn óguðlega í ofstopa sínum og þenja sig út sem grænt tré á gróðrarstöðvum sínum,

    37:36 og ég gekk fram hjá, og sjá, hann var þar ekki framar, ég leitaði hans, en hann fannst ekki.

    37:37 Gef gætur að hinum ráðvanda og lít á hinn hreinskilna, því að friðsamir menn eiga framtíð fyrir höndum,

    37:38 en afbrotamönnum verður útrýmt öllum samt, framtíðarvon óguðlegra bregst.

    37:39 Hjálp réttlátra kemur frá Drottni, hann er hæli þeirra á neyðartímum.

    37:40 Drottinn liðsinnir þeim og bjargar þeim, bjargar þeim undan hinum óguðlega og hjálpar þeim, af því að þeir leituðu hælis hjá honum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine