Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 38

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    38:1 Davíðssálmur. Minningarljóð.

    38:2 Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni.

    38:3 Örvar þínar standa fastar í mér, og hönd þín liggur þungt á mér.

    38:4 Enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum sakir reiði þinnar, ekkert heilt í beinum mínum sakir syndar minnar.

    38:5 Misgjörðir mínar ganga mér yfir höfuð, sem þung byrði eru þær mér of þungar orðnar.

    38:6 Ódaun leggur af sárum mínum, rotnun er í þeim sakir heimsku minnar.

    38:7 Ég er beygður og mjög bugaður, ráfa um harmandi daginn langan.

    38:8 Lendar mínar eru fullar bruna, og enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum.

    38:9 Ég er lémagna og kraminn mjög, kveina af angist hjartans.

    38:10 Drottinn, öll mín þrá er þér kunn og andvörp mín eru eigi hulin þér.

    38:11 Hjarta mitt berst ákaft, kraftur minn er þrotinn, jafnvel ljós augna minna er horfið mér.

    38:12 Ástvinir mínir og kunningjar hörfa burt fyrir kröm minni, og frændur mínir standa fjarri.

    38:13 Þeir er sitja um líf mitt, leggja snörur fyrir mig, þeir er leita mér meins, mæla skaðræði og hyggja á svik allan liðlangan daginn.

    38:14 En ég er sem daufur, ég heyri það ekki, og sem dumbur, er eigi opnar munninn,

    38:15 ég er sem maður er eigi heyrir og engin andmæli eru í munni hans.

    38:16 Því að á þig, Drottinn, vona ég, þú munt svara mér, Drottinn minn og Guð minn,

    38:17 því að ég segi: ,,Lát þá eigi hlakka yfir mér, eigi hælast um af því, að mér skriðni fótur.``

    38:18 Því að ég er að falli kominn, og þjáningar mínar eru mér æ fyrir augum.

    38:19 Ég játa misgjörð mína, harma synd mína,

    38:20 og þeir sem án saka eru óvinir mínir, eru margir, fjölmargir þeir er hata mig að ástæðulausu.

    38:21 Þeir gjalda mér gott með illu, sýna mér fjandskap, af því ég legg stund á það sem gott er.

    38:22 Yfirgef mig ekki, Drottinn, Guð minn, ver ekki fjarri mér,

    38:23 skunda til liðs við mig, Drottinn, þú hjálp mín.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine