Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 41

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    41:1 Til söngstjórans. Davíðssálmur.

    41:2 Sæll er sá er gefur gaum að bágstöddum, á mæðudeginum bjargar Drottinn honum.

    41:3 Drottinn varðveitir hann og lætur hann njóta lífs og sælu í landinu. Og eigi ofurselur þú hann græðgi óvina hans.

    41:4 Drottinn styður hann á sóttarsænginni, þegar hann er sjúkur, breytir þú beð hans í hvílurúm.

    41:5 Ég sagði: ,,Ver mér náðugur, Drottinn, lækna sál mína, því að ég hefi syndgað móti þér.``

    41:6 Óvinir mínir biðja mér óbæna: ,,Hvenær skyldi hann deyja og nafn hans hverfa?``

    41:7 Og ef einhver kemur til þess að vitja mín, talar hann tál. Hjarta hans safnar að sér illsku, hann fer út og lætur dæluna ganga.

    41:8 Allir hatursmenn mínir hvískra um mig, þeir hyggja á illt mér til handa:

    41:9 ,,Hann er altekinn helsótt, hann er lagstur og rís eigi upp framar.``

    41:10 Jafnvel sá er ég lifði í sátt við, sá er ég treysti, sá er etið hefir af mat mínum, lyftir hæl sínum í móti mér.

    41:11 En þú, Drottinn, ver mér náðugur og lát mig aftur rísa á fætur, að ég megi endurgjalda þeim.

    41:12 Af því veit ég, að þú hefir þóknun á mér, að óvinur minn hlakkar ekki yfir mér.

    41:13 Vegna sakleysis míns hélst þú mér uppi og lætur mig standa frammi fyrir augliti þínu að eilífu. _________

    41:14 Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine