Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 44

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    44:1 Til söngstjórans. Kóraítamaskíl.

    44:2 Guð, með eyrum vorum höfum vér heyrt, feður vorir hafa sagt oss frá dáð þeirri, er þú drýgðir á dögum þeirra, frá því, er þú gjörðir forðum daga.

    44:3 Þú stökktir burt þjóðum, en gróðursettir þá, þú lékst lýði harðlega, en útbreiddir þá.

    44:4 Eigi unnu þeir landið með sverðum sínum, og eigi hjálpaði armleggur þeirra þeim, heldur hægri hönd þín og armleggur þinn og ljós auglitis þíns, því að þú hafðir þóknun á þeim.

    44:5 Þú einn ert konungur minn, ó Guð, bjóð út hjálp Jakobsætt til handa.

    44:6 Fyrir þína hjálp rekum vér fjandmenn vora undir, og fyrir þitt nafn troðum vér mótstöðumenn vora fótum.

    44:7 Ég treysti eigi boga mínum, og sverð mitt veitir mér eigi sigur,

    44:8 heldur veitir þú oss sigur yfir fjandmönnum vorum og lætur hatursmenn vora verða til skammar.

    44:9 Af Guði hrósum vér oss ætíð og lofum nafn þitt að eilífu. [Sela]

    44:10 Og þó hefir þú útskúfað oss og látið oss verða til skammar og fer eigi út með hersveitum vorum.

    44:11 Þú lætur oss hörfa undan fjandmönnum, og hatursmenn vorir taka herfang.

    44:12 Þú selur oss fram sem fénað til slátrunar og tvístrar oss meðal þjóðanna.

    44:13 Þú selur lýð þinn fyrir gjafverð, tekur ekkert verð fyrir hann.

    44:14 Þú lætur oss verða til háðungar nágrönnum vorum, til spotts og athlægis þeim er búa umhverfis oss.

    44:15 Þú gjörir oss að orðskvið meðal lýðanna, lætur þjóðirnar hrista höfuðið yfir oss.

    44:16 Stöðuglega stendur smán mín mér fyrir sjónum, og skömm hylur auglit mitt,

    44:17 af því ég verð að heyra spott og lastmæli og horfa á óvininn og hinn hefnigjarna.

    44:18 Allt þetta hefir mætt oss, og þó höfum vér eigi gleymt þér og eigi rofið sáttmála þinn.

    44:19 Hjarta vort hefir eigi horfið frá þér né skref vor beygt út af vegi þínum,

    44:20 en samt hefir þú kramið oss sundur á stað sjakalanna og hulið oss niðdimmu.

    44:21 Ef vér hefðum gleymt nafni Guðs vors og fórnað höndum til útlendra guða,

    44:22 mundi Guð eigi verða þess áskynja, hann sem þekkir leyndarmál hjartans?

    44:23 En þín vegna erum vér stöðugt drepnir, erum metnir sem sláturfé.

    44:24 Vakna! Hví sefur þú, Drottinn? Vakna, útskúfa oss eigi um aldur!

    44:25 Hví hylur þú auglit þitt, gleymir eymd vorri og kúgun?

    44:26 Sál vor er beygð í duftið, líkami vor loðir við jörðina.

    44:27 Rís upp, veit oss lið og frelsa oss sakir miskunnar þinnar.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine