Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 45

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    45:1 Til söngstjórans. Lag: Liljur. Kóraítamaskíl. Brúðkaupskvæði.

    45:2 Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum, ég flyt konungi kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritarans.

    45:3 Fegurri ert þú en mannanna börn, yndisleik er úthellt yfir varir þínar, fyrir því hefir Guð blessað þig að eilífu.

    45:4 Gyrð lendar þínar sverði, þú hetja, ljóma þínum og vegsemd.

    45:5 Sæk fram sigursæll sakir tryggðar og réttlætis, hægri hönd þín mun sýna þér ógurlega hluti.

    45:6 Örvar þínar eru hvesstar, þjóðir falla að fótum þér, fjandmenn konungs eru horfnir.

    45:7 Hásæti þitt er Guðs hásæti um aldur og ævi, sproti ríkis þíns er réttlætis-sproti.

    45:8 Þú elskar réttlæti og hatar ranglæti, fyrir því hefir Guð, þinn Guð, smurt þig með fagnaðarolíu framar félögum þínum.

    45:9 Myrra og alóe og kassía eru öll þín klæði, frá fílabeinshöllinni gleður strengleikurinn þig.

    45:10 Konungadætur eru meðal vildarkvenna þinna, konungsbrúðurin stendur þér til hægri handar í skrúða Ófír-gulls.

    45:11 ,,Heyr, dóttir, og hneig eyra þitt! Gleym þjóð þinni og föðurlandi,

    45:12 að konungi megi renna hugur til fegurðar þinnar, því að hann er herra þinn og honum átt þú að lúta.

    45:13 Frá Týrus munu menn koma með gjafir, auðugustu menn lýðsins leita hylli þinnar.``

    45:14 Eintómt skraut er konungsdóttirin, perlum sett og gullsaumi eru klæði hennar.

    45:15 Í glitofnum klæðum er hún leidd fyrir konung, meyjar fylgja henni, vinkonur hennar eru færðar fram fyrir þig.

    45:16 Þær eru leiddar inn með fögnuði og gleði, þær fara inn í höll konungs.

    45:17 Í stað feðra þinna komi synir þínir, þú munt gjöra þá að höfðingjum um land allt.

    45:18 Ég vil gjöra nafn þitt minnisstætt öllum komandi kynslóðum, þess vegna skulu þjóðir lofa þig um aldur og ævi.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine