Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 46

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    46:1 Til söngstjórans. Eftir Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð.

    46:2 Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.

    46:3 Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.

    46:4 Látum vötnin gnýja og freyða, látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. [Sela]

    46:5 Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg, heilagan bústað Hins hæsta.

    46:6 Guð býr í henni, eigi mun hún bifast, Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.

    46:7 Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu, raust hans þrumaði, jörðin nötraði.

    46:8 Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela]

    46:9 Komið, skoðið dáðir Drottins, hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu.

    46:10 Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.

    46:11 ,,Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.``

    46:12 Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela]

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine