Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 49

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    49:1 Fyrir kvenraddir. Til söngstjórans. Kóraítasálmur.

    49:2 Heyrið þetta, allar þjóðir, hlustið á, allir heimsbúar,

    49:3 bæði lágir og háir, jafnt ríkir sem fátækir!

    49:4 Munnur minn talar speki, og ígrundun hjarta míns er hyggindi.

    49:5 Ég hneigi eyra mitt að spakmæli, ræð gátu mína við gígjuhljóm.

    49:6 Hví skyldi ég óttast á mæðudögunum, þá er hinir lævísu óvinir mínir umkringja mig með illsku,

    49:7 þeir sem reiða sig á auðæfi sín og stæra sig af sínu mikla ríkidæmi.

    49:8 Enginn maður fær keypt bróður sinn lausan né greitt Guði lausnargjald fyrir hann.

    49:9 Lausnargjaldið fyrir líf þeirra mundi verða of hátt, svo að hann yrði að hætta við það að fullu,

    49:10 ætti hann að halda áfram að lifa ævinlega og líta ekki í gröfina.

    49:11 Nei, hann sér, að vitrir menn deyja, að fífl og fáráðlingar farast hver með öðrum og láta öðrum eftir auðæfi sín.

    49:12 Grafir verða heimkynni þeirra að eilífu, bústaðir þeirra frá kyni til kyns, jafnvel þótt þeir hafi kennt lendur við nafn sitt.

    49:13 Maðurinn í allri sinni vegsemd stenst ekki, hann verður jafn skepnunum sem farast.

    49:14 Svo fer þeim sem eru þóttafullir, og þeim sem fylgja þeim og hafa þóknun á tali þeirra. [Sela]

    49:15 Þeir stíga niður til Heljar eins og sauðahjörð, dauðinn heldur þeim á beit, og hinir hreinskilnu drottna yfir þeim, þá er morgnar, og mynd þeirra eyðist, Hel verður bústaður þeirra.

    49:16 En mína sál mun Guð endurleysa, því að hann mun hrífa mig úr greipum Heljar. [Sela]

    49:17 Óttast þú ekki, þegar einhver verður ríkur, þegar dýrð húss hans verður mikil,

    49:18 því að hann tekur ekkert af því með sér, þegar hann deyr, auður hans fer ekki niður þangað á eftir honum.

    49:19 Hann telur sig sælan meðan hann lifir: ,,Menn lofa þig, af því að þér farnast vel.``

    49:20 _ Hann verður þó að fara til kynslóðar feðra sinna, sem aldrei að eilífu sjá ljósið.

    49:21 Maðurinn í vegsemd, en hyggindalaus, verður jafn skepnunum sem farast.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine