Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 50

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    50:1 Asafs-sálmur. Drottinn er alvaldur Guð, hann talar og kallar á jörðina frá upprás sólar til niðurgöngu hennar.

    50:2 Frá Síon, ímynd fegurðarinnar, birtist Guð í geisladýrð.

    50:3 Guð vor kemur og þegir ekki. Eyðandi eldur fer fyrir honum, og í kringum hann geisar stormurinn.

    50:4 Hann kallar á himininn uppi og á jörðina, til þess að dæma lýð sinn:

    50:5 ,,Safnið saman dýrkendum mínum, þeim er gjört hafa sáttmála við mig með fórnum.``

    50:6 Þá kunngjörðu himnarnir réttlæti hans, því að Guð er sá sem dæmir. [Sela]

    50:7 ,,Heyr, þjóð mín, og lát mig tala, Ísrael, og lát mig áminna þig, ég er Drottinn, Guð þinn!

    50:8 Eigi er það vegna fórna þinna, að ég ávíta þig, brennifórnir þínar eru stöðuglega frammi fyrir mér.

    50:9 Ég þarf ekki að taka uxa úr húsi þínu né geithafra úr stíu þinni,

    50:10 því að mín eru öll skógardýrin og skepnurnar á fjöllum þúsundanna.

    50:11 Ég þekki alla fugla á fjöllunum, og mér er kunnugt um allt það sem hrærist á mörkinni.

    50:12 Væri ég hungraður, mundi ég ekki segja þér frá því, því að jörðin er mín og allt sem á henni er.

    50:13 Et ég nauta kjöt, eða drekk ég hafra blóð?

    50:14 Fær Guði þakkargjörð að fórn og gjald Hinum hæsta þannig heit þín.

    50:15 Ákalla mig á degi neyðarinnar, og ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig.``

    50:16 En við hinn óguðlega segir Guð: ,,Hvernig dirfist þú að telja upp boðorð mín og taka sáttmála minn þér í munn,

    50:17 þar sem þú þó hatar aga og varpar orðum mínum að baki þér?

    50:18 Sjáir þú þjóf, leggur þú lag þitt við hann, og við hórkarla hefir þú samfélag.

    50:19 Þú hleypir munni þínum út í illsku, og tunga þín bruggar svik.

    50:20 Þú situr og bakmælir bróður þínum og ófrægir son móður þinnar.

    50:21 Slíkt hefir þú gjört, og ég ætti að þegja? Þú heldur, að ég sé líkur þér! Ég mun hegna þér og endurgjalda þér augljóslega.

    50:22 Hyggið að þessu, þér sem gleymið Guði, til þess að ég sundurrífi ekki og enginn fái bjargað.

    50:23 Sá sem færir þakkargjörð að fórn, heiðrar mig, og þann sem breytir grandvarlega, vil ég láta sjá hjálpræði Guðs.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine