Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 51

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    51:1 Til söngstjórans. Sálmur Davíðs,

    51:2 þá er Natan spámaður kom til hans, eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu.

    51:3 Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.

    51:4 Þvo mig hreinan af misgjörð minni, hreinsa mig af synd minni,

    51:5 því að ég þekki sjálfur afbrot mín, og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.

    51:6 Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur, er þú talar, hreinn, er þú dæmir.

    51:7 Sjá, sekur var ég, er ég varð til, syndugur, er móðir mín fæddi mig.

    51:8 Sjá, þú hefir þóknun á hreinskilni hið innra, og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!

    51:9 Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn, þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.

    51:10 Lát mig heyra fögnuð og gleði, lát kætast beinin sem þú hefir sundurmarið.

    51:11 Byrg auglit þitt fyrir syndum mínum og afmá allar misgjörðir mínar.

    51:12 Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.

    51:13 Varpa mér ekki burt frá augliti þínu og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.

    51:14 Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis og styð mig með fúsleiks anda,

    51:15 að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína og syndarar megi hverfa aftur til þín.

    51:16 Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns, lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.

    51:17 Drottinn, opna varir mínar, svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!

    51:18 Þú hefir ekki þóknun á sláturfórnum _ annars mundi ég láta þær í té _ og að brennifórnum er þér ekkert yndi.

    51:19 Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi, sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.

    51:20 Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar, reis múra Jerúsalem!

    51:21 Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn, þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine