Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 52

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    52:1 Til söngstjórans. Maskíl eftir Davíð,

    52:2 þá er Dóeg Edómíti kom og sagði Sál frá og mælti til hans: Davíð er kominn í hús Ahímeleks.

    52:3 Hví stærir þú þig af vonskunni, harðstjóri? Miskunn Guðs varir alla daga!

    52:4 Tunga þín býr yfir skaðræði, eins og beittur rakhnífur, þú svikaforkur!

    52:5 Þú elskar illt meir en gott, lygi fremur en sannsögli. [Sela]

    52:6 Þú elskar hvert skaðræðisorð, þú fláráða tunga!

    52:7 Því mun og Guð brjóta þig niður fyrir fullt og allt, hrífa þig burt og draga þig út úr tjaldi þínu og uppræta þig úr landi lifenda. [Sela]

    52:8 Hinir réttlátu munu sjá það og óttast, og þeir munu hlæja að honum:

    52:9 ,,Þetta er maðurinn, sem ekki gjörði Guð að vernd sinni, heldur treysti á hin miklu auðæfi sín og þrjóskaðist í illsku sinni.``

    52:10 En ég er sem grænt olíutré í húsi Guðs, treysti á Guðs náð um aldur og ævi.

    52:11 Ég vil vegsama þig að eilífu, því að þú hefir því til vegar komið, kunngjöra fyrir augum þinna trúuðu, að nafn þitt sé gott.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine