Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 6

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    6:1 Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur.

    6:2 Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni.

    6:3 Líkna mér, Drottinn, því að ég örmagnast, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast.

    6:4 Sál mín er óttaslegin, en þú, ó Drottinn _ hversu lengi?

    6:5 Snú þú aftur, Drottinn, frelsa sálu mína, hjálpa mér sakir elsku þinnar.

    6:6 Því að enginn minnist þín í dánarheimum, hver skyldi lofa þig hjá Helju?

    6:7 Ég er þreyttur af andvörpum mínum, ég lauga rekkju mína í tárum, læt hvílu mína flóa hverja nótt.

    6:8 Augu mín eru döpruð af harmi, orðin sljó sakir allra óvina minna.

    6:9 Farið frá mér, allir illgjörðamenn, því að Drottinn hefir heyrt grátraust mína.

    6:10 Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína, Drottinn tekur á móti bæn minni.

    6:11 Allir óvinir mínir skulu verða til skammar og skelfast mjög, hraða sér sneyptir burt.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine