Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 7

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    7:1 Davíðssálmur, er hann kvað fyrir Drottni sakir Kús Benjamíníta.

    7:2 Drottinn, Guð minn, hjá þér leita ég hælis, hjálpa mér undan öllum ofsækjendum mínum og bjarga mér,

    7:3 svo að þeir rífi mig ekki í sundur eins og ljón, tæti mig í sundur og enginn bjargi mér.

    7:4 Drottinn, Guð minn, hafi ég gjört þetta: sé ranglæti í höndum mínum,

    7:5 hafi ég illt gjört þeim er lifðu í friði við mig, eða gjört fjandmönnum mínum mein að ástæðulausu,

    7:6 þá elti mig óvinur minn og nái mér, troði líf mitt til jarðar og varpi sæmd minni í duftið. [Sela]

    7:7 Rís þú upp, Drottinn, í reiði þinni, hef þig gegn ofsa fjandmanna minna og vakna mér til hjálpar, þú sem hefir fyrirskipað réttan dóm.

    7:8 Söfnuður þjóðanna umkringi þig, og tak þú sæti uppi yfir honum á hæðum.

    7:9 Þú Drottinn, sem dæmir þjóðirnar, lát mig ná rétti mínum, Drottinn, samkvæmt réttlæti mínu og ráðvendni.

    7:10 Lát endi á verða illsku óguðlegra, en styrk hina réttlátu, þú, sem rannsakar hjörtun og nýrun, réttláti Guð!

    7:11 Guð heldur skildi fyrir mér, hann hjálpar hinum hjartahreinu.

    7:12 Guð er réttlátur dómari, hann reiðist illskunni dag hvern.

    7:13 Vissulega hvetur hinn óguðlegi aftur sverð sitt, bendir boga sinn og leggur til hæfis,

    7:14 en sjálfum sér hefir hann búið hin banvænu vopn, skotið brennandi örvum.

    7:15 Já, hann getur illsku, er þungaður af ranglæti og elur tál.

    7:16 Hann gróf gröf og gjörði hana djúpa, en sjálfur fellur hann í gryfjuna er hann gjörði.

    7:17 Ranglæti hans kemur sjálfum honum í koll, og ofbeldi hans fellur í höfuð honum sjálfum.

    7:18 Ég vil lofa Drottin fyrir réttlæti hans og lofsyngja nafni Drottins hins hæsta.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine