Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 8

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    8:1 Til söngstjórans. Á gittít. Davíðssálmur.

    8:2 Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn.

    8:3 Af munni barna og brjóstmylkinga hefir þú gjört þér vígi til varnar gegn óvinum þínum, til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins.

    8:4 Þegar ég horfi á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað,

    8:5 hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans, og mannsins barn, að þú vitjir þess?

    8:6 Þú lést hann verða litlu minni en Guð, með sæmd og heiðri krýndir þú hann.

    8:7 Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum, allt lagðir þú að fótum hans:

    8:8 sauðfénað allan og uxa, og auk þess dýr merkurinnar,

    8:9 fugla loftsins og fiska hafsins, allt það er fer hafsins vegu.

    8:10 Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine