Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 62

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    62:1 Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Davíðssálmur.

    62:2 Bíð róleg eftir Guði, sála mín, frá honum kemur hjálpræði mitt.

    62:3 Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín _ ég verð eigi valtur á fótum.

    62:4 Hversu lengi ætlið þér að ryðjast allir saman gegn einum manni til að fella hann eins og hallan vegg, eins og hrynjandi múr?

    62:5 Þeir ráðgast um það eitt að steypa honum úr tign hans, þeir hafa yndi af lygi, þeir blessa með munninum, en bölva í hjartanu. [Sela]

    62:6 Bíð róleg eftir Guði, sála mín, því að frá honum kemur von mín.

    62:7 Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín _ ég verð eigi valtur á fótum.

    62:8 Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og hæli mitt hefi ég í Guði.

    62:9 Treyst honum, allur þjóðsöfnuðurinn, úthellið hjörtum yðar fyrir honum, Guð er vort hæli. [Sela]

    62:10 Hégóminn einn eru mennirnir, tál eru mannanna börn, á metaskálunum lyftast þeir upp, einber hégómi eru þeir allir saman.

    62:11 Treystið eigi ránfeng og alið eigi fánýta von til rændra muna, þótt auðurinn vaxi, þá gefið því engan gaum.

    62:12 Eitt sinn hefir Guð talað, tvisvar hefi ég heyrt það: ,,Hjá Guði er styrkleikur.``

    62:13 Já, hjá þér, Drottinn, er miskunn, því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine