Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 63

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    63:1 Sálmur eftir Davíð, þá er hann var í Júda-eyðimörk.

    63:2 Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér, hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.

    63:3 Þannig hefi ég litast um eftir þér í helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,

    63:4 því að miskunn þín er mætari en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.

    63:5 Þannig skal ég lofa þig meðan lifi, hefja upp hendurnar í þínu nafni.

    63:6 Sál mín mettast sem af merg og feiti, og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,

    63:7 þá er ég minnist þín í hvílu minni, hugsa um þig á næturvökunum.

    63:8 Því að þú ert mér fulltingi, í skugga vængja þinna fagna ég.

    63:9 Sál mín heldur sér fast við þig, hægri hönd þín styður mig.

    63:10 Þeir sem sitja um líf mitt sjálfum sér til glötunar, munu hverfa í djúp jarðar.

    63:11 Þeir munu verða ofurseldir sverðseggjum, verða sjakölunum að bráð.

    63:12 Konungurinn skal gleðjast yfir Guði, hver sá er sver við hann, skal sigri hrósa, af því að munni lygaranna hefir verið lokað.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine