Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 64

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    64:1 Til söngstjórans. Davíðssálmur.

    64:2 Heyr, ó Guð, raust mína, er ég kveina, varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins.

    64:3 Skýl mér fyrir bandalagi bófanna, fyrir óaldarflokki illvirkjanna,

    64:4 er hvetja tungur sínar sem sverð, leggja örvar sínar, beiskyrðin, á streng

    64:5 til þess að skjóta í leyni á hinn ráðvanda, skjóta á hann allt í einu, hvergi hræddir.

    64:6 Þeir binda fastmælum með sér ill áform, tala um að leggja leynisnörur, þeir hugsa: ,,Hver ætli sjái það?``

    64:7 Þeir upphugsa ranglæti: ,,Vér erum tilbúnir, vel ráðin ráð!`` því að hugskot hvers eins og hjarta er fullt véla.

    64:8 Þá lýstur Guð þá með örinni, allt í einu verða þeir sárir,

    64:9 og tunga þeirra verður þeim að falli. Allir þeir er sjá þá, munu hrista höfuðið.

    64:10 Þá mun hver maður óttast og kunngjöra dáðir Guðs og gefa gætur að verkum hans.

    64:11 Hinn réttláti mun gleðjast yfir Drottni og leita hælis hjá honum, og allir hjartahreinir munu sigri hrósa.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine