Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 65

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    65:1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð.

    65:2 Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon, og við þig séu heitin efnd.

    65:3 Þú sem heyrir bænir, til þín kemur allt hold.

    65:4 Margvíslegar misgjörðir urðu mér yfirsterkari, en þú fyrirgafst afbrot vor.

    65:5 Sæll er sá er þú útvelur og lætur nálægjast þig til þess að búa í forgörðum þínum, að vér megum seðjast af gæðum húss þíns, helgidómi musteris þíns.

    65:6 Með óttalegum verkum svarar þú oss í réttlæti, þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra jarðarinnar endimarka og fjarlægra stranda,

    65:7 þú sem festir fjöllin með krafti þínum, gyrtur styrkleika,

    65:8 þú sem stöðvar brimgný hafsins, brimgnýinn í bylgjum þess og háreystina í þjóðunum,

    65:9 svo að þeir er búa við endimörk jarðar óttast tákn þín, austrið og vestrið lætur þú fagna.

    65:10 Þú hefir vitjað landsins og vökvað það, blessað það ríkulega með læk Guðs, fullum af vatni, þú hefir framleitt korn þess, því að þannig hefir þú gjört það úr garði.

    65:11 Þú hefir vökvað plógför þess, jafnað plóggarða þess, með regnskúrum hefir þú mýkt það, blessað gróður þess.

    65:12 Þú hefir krýnt árið með gæsku þinni, og vagnspor þín drjúpa af feiti.

    65:13 Það drýpur af heiðalöndunum, og hæðirnar girðast fögnuði.

    65:14 Hagarnir klæðast hjörðum, og dalirnir hyljast korni. Allt fagnar og syngur.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine