Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 66

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    66:1 Til söngstjórans. Ljóð. Sálmur. Fagnið fyrir Guði, gjörvallt jarðríki,

    66:2 syngið um hans dýrlega nafn, gjörið lofstír hans vegsamlegan.

    66:3 Mælið til Guðs: Hversu óttaleg eru verk þín, sakir mikilleiks máttar þíns hræsna óvinir þínir fyrir þér.

    66:4 Öll jörðin lúti þér og lofsyngi þér, lofsyngi nafni þínu. [Sela]

    66:5 Komið og sjáið verkin Guðs, sem er óttalegur í breytni sinni gagnvart mönnunum.

    66:6 Hann breytti hafinu í þurrlendi, þeir fóru fótgangandi yfir ána. Þá glöddumst vér yfir honum.

    66:7 Hann ríkir um eilífð sakir veldis síns, augu hans gefa gætur að þjóðunum, uppreistarmenn mega eigi láta á sér bæra. [Sela]

    66:8 Þér lýðir, lofið Guð vorn og látið hljóma lofsöng um hann.

    66:9 Hann veitti sálum vorum lífið og lét oss eigi verða valta á fótum.

    66:10 Því að þú hefir rannsakað oss, ó Guð, hreinsað oss, eins og silfur er hreinsað.

    66:11 Þú hefir varpað oss í fangelsi, lagt byrði á lendar vorar.

    66:12 Þú hefir látið menn ganga yfir höfuð vor, vér höfum farið gegnum eld og vatn, en nú hefir þú leitt oss út á víðan vang.

    66:13 Ég kem í hús þitt með brennifórnir, efni heit mín við þig,

    66:14 þau er varir mínar hétu og munnur minn nefndi, þá er ég var í nauðum staddur.

    66:15 Ég færi þér brennifórn af feitum dýrum, ásamt fórnarilm af hrútum, ég fórna nautum og höfrum. [Sela]

    66:16 Komið, hlýðið til, allir þér er óttist Guð, að ég megi segja frá, hvað hann hefir gjört fyrir mig.

    66:17 Til hans hrópaði ég með munni mínum, en lofgjörð lá undir tungu minni.

    66:18 Ef ég hygg á illt í hjarta mínu, þá heyrir Drottinn ekki.

    66:19 En Guð hefir heyrt, gefið gaum að bænarópi mínu.

    66:20 Lofaður sé Guð, er eigi vísaði bæn minni á bug né tók miskunn sína frá mér.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine